
Til hamingju með 100 ára afmælið! – Hér er blaut tuska í andlitið…
Stjórnsýsla Hafnarfjarðarbæjar hefur nú sagt upp samstarfssamningi við Skátafélagið Hraunbúa, ákvörðun sem kemur félaginu í opna skjöldu og mjög viðkvæmt ástand. Ástæða uppsagnar er ágreiningur milli málsaðila um viðhald á tjaldsvæði bæjarbúa, tjaldsvæði sem Skátafélagið Hraunbúar hafa rekið í yfir 30 ár í farsælu samstarfi við bæinn.
Félagið harmar ákvörðun bæjarins að segja samningnum upp einhliða en samningurinn er grundvöllur fyrir öflugu og vönduðu æskulýðsstarfi í bænum. Ákvörðunin sýnir í verki hvernig fulltrúar bæjarins standa hreinlega í vegi fyrir uppbyggingu æskulýðsstarfs í bænum. Samningnum er sagt upp í miðri samningalotu um sérstakt viðhald á tjaldsvæðinu en svæðið kom mjög illa undan rigningasumri 2024. Bærinn segir ábyrgð á viðhaldi vera okkar þrátt fyrir að í samningi standi greinilega að allt stærra viðhald skuli greitt samkvæmt eignaskiptasamningi en bærinn er eini eigandi tjaldsvæðis og þjónustuhúsi þess.
Samningurinn sem nú hefur verið sagt upp nær mun víðar en til reksturs tjaldsvæðis á Víðistaðatúni. Hann tryggir grundvöll skátastarfs í Hraunbyrgi – eina skátaheimili landsins sem hannað er sérstaklega með þarfir barna og ungmenna í huga og styður við mikilvægt starf sem hefur byggst upp með ómetanlegri sjálfboðavinnu í yfir 100 ár.
Með þessari aðgerð er verið að slíta lífæð skátastarfsins í bænum. Tekjur tjaldsvæðisins hafa verið lykilþáttur í að halda úti starfi félagsins, standa undir húsnæðisrekstri og ráða starfsfólk allt árið um kring. Á fundum hafa bæjarstarfsmenn jafnvel lýst yfir vilja til að loka tjaldsvæðinu, án þess að leggja fram neina skýra framtíðarsýn eða greiningu á áhrifum þess á barna- og ungmennastarf í bænum. Nú blasir við sviðsmynd þar sem bæjarfélagið lokar tjaldsvæðinu, skerðir tekjuforsendur félagsins og getur þannig óbeint leitt til þess að Hraunbyrgi loki – með ófyrirséðum áhrifum á skátastarf barna í Hafnarfirði.
Það er mat okkar að þessi ákvörðun endurspegli dýpri vanda í stjórnsýslu bæjarins – þar sem samstarf við frjáls félagasamtök er ekki byggt á gagnkvæmu trausti, heldur einhliða túlkunum, valdboði og ítrekaðri vanrækslu á samtali og samráði. Starfsmenn hafa sýnt skýr merki um valdníðslu í meðhöndlun þessa máls og látið hjá líða að svara málefnalegum erindum Hraunbúa. Þess í stað er leitað að tæknilegum leiðum til að loka á starfsemi sem þjónar bæði beint og óbeint hundruðum barna og ungmenna ár hvert. Á sama tíma er milljörðum af peningum bæjarbúa eytt í knatthús og önnur íþróttamannvirki.
Við teljum þetta alvarlega aðför að öflugu og sjálfboðadrifnu félagi sem hefur í heila öld lagt sitt af mörkum til samfélagsins — ekki aðeins fyrir skátahreyfinguna heldur fyrir bæjarbúa alla, m.a. með þjónustu við ferðamenn, menningarviðburði, og hátíðisdaga. Við köllum eftir því að bæjarfulltrúar axli ábyrgð, endurskoði þessa ákvörðun og stöðvi aðför gegn öflugasta skátafélagi landsins, skátafélag sem bæjarbúar allir geta verið stoltir af.
Við stöndum ekki ein – og við ætlum ekki að gefast upp.
Fyrir hönd Skátafélagsins Hraunbúa,
Bjarni Freyr Þórðarson
Félagsforingi
Recent Comments