Skip to main content

Skátaskálinn Hverahlíð

Nafn: Hverahlíð
Svefnpláss: 15

Leiðarlýsing: 
Sunnan Kleifarvatns á Reykjanesi. Keyrt er frá Hafnarfirði í gegnum Helluhverfið og í átt að Vatnsgarðsnámum. Þaðan er haldið áfram og keyrt á vegi 42 vestan við Kleifarvatn. Vegurinn er ekki fær allan ársins hring og því er gott að skoða værð á vegum hjá Vegagerðinni. Þegar komið er að enda Kleifarvatns er beygt vinstri við blátt skilti sem á stendur ‘Hverahlíð’.

Umhverfi: 
Skálinn stendur á hitasvæði og er heitur hver við hliðina á honum, en hitastigið í hvernum lækkaði talsvert í kjölfar Suðurlandsskjálftanna en hefur hækkað hægt og rólega með tímanum og er því­ uppálagt að baka sér rúgbrauð í leirnum. Einnig er hægt að baka brauð í Engjahver að stóahver sem er einungis tekur hálftíma að labba að.

Í nágrenni skálans er nánast allt sem skátinn getur hugsað sér, vatn, fjöll, hverir, heitur pottur og margt, margt fleira. Það er ekki alvöru Hverahlíðarútilega nema farið sé ípottinn, en potturinn er ígöngufæri frá skálanum. Til að komast að pottinum er farið út að Krýsuvíkurveg og labbað íátt að Krýsuvík ísmá tíma og beygt til hægri á litlum vegslóða eftir að komið er framhjá Bleikhól. Þar er hin svokallaða Hraunbúalaug en hún varð margfræg þegar Sí­minn tók upp kollektauglýsingarnar sínar þar.

Skálinn er staðsettur á Reykjanesfólkvangi en hann er um 300 km2 á stærð og langstærsta friðlýsta svæði sinnar tegundar á Íslandi. Reykjanesfólkvangur var friðlýstur árið 1975 en nánar má lesa um það á vef umhverfisstofnunar eða Landverndar. Um fólkvanginn gilda umhverfisreglur sem bera að virða í hvívetna.

Reykjanesfólkvangur | Gönguleiðir kort og lýsingar | Fróðleikur frá Ferlir

Skálinn:
Skálinn er á tveimur hæðum og er efri hæðin svefnloft. Á neðri hæðinni er svo eldhúskrókur, anddyri og rúmgott rými til að sitja saman og borða, spila, halda kvöldvökur og fleira. Skálinn er hitaður upp með kamínu og lýstur upp með 12 volta sólarrafhlöðum. Símasamband er mjög takmarkað en þó eru nokkrir punktar á svæðinu þar sem hægt er að ná sambandi.

Í skálanum er borðbúnaður fyrir 15 manns, gashellur, ísskápur, vaskur en ekki rennandi vatn. Mikilvægt er að koma með vatn með sér. Einnig er kort í skálanum auk staðarlýsingar á Reykjanesfólkvangi.

Útikamar eru steinsnar frá skálanum en inni á honum er rafmagnslýsing sem gengur fyrir áðurnefndum sólarrafhlöðum. Einnig er fánastöng fyrir utan skálann þar sem tilvalið er að halda morgunæfingar og fána.

Um 40m2 viðarpallur er við skálann með litlum skjólveggjum. Kolagrill er á pallinum en leigjandi skaffar sjálfur kol og íkveikilög. Grindur eru á grillinu.

Skálinn er útbúinn bæði gas- og reykskynjurum.

Myndir

GPS hnit:
Hverahlíð: N63 54.273 W22 00.986
Gullbringa: N63 54.557 W21 56.988
Krýsuvíkurkirkja: N63 52.118 W22 03.711

Ertu með fleiri hnit? Sendu okkur á tolvualfar hjá hraunbuar.is.

Skálagjald og pantanir:
Upplýsingar um skálagjald og pantanir er hægt að nálgast í gegnum tölvupóstfang Hverahlíðar, hverahlid hjá hraunbuar.is eða í Hraunbyrgi s. 565-0900.

Fylgstu með Hverahlíð
Til að skoða fréttir og tilkynningar um Hverahlíð, þá geturu smellt hér!

Samningur og verð:
Smelltu hér til að skoða leigusamning og gildandi Verðskrá Hverahlíðar.