Skip to main content

Sérstaða skátastarfs

Skátalög, skátaheit og kjörorð skáta er það sem skilur skátastarfið frá öðru tómstundarstarfi. Skátinn vinnur heit um það hvernig hann hyggst lifa lí­finu. Það er mikil ákvörðun og ævilangt verkefni að leitast við að uppfylla skátaheitið, lifa í­ anda skátalaganna, vera ávallt viðbúinn og verða þannig að betri manni. Skátahreyfingin hefur sett sér það að markmiði að leiða börn og ungt fólk til þroska svo að þau verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar. Þetta gerir skátahreyfingin með útilí­fi, alþjóðlegu skátastarfi, með margví­slegum viðfangsefnum og hópstarfi.

Fjölmargir fullorðnir skátar ví­ða um land leggja á sig ómælda sjálfboðavinnu svo að bæta megi hag barna og bjóða þeim spennandi valkost í­ æskulýðsstarfi. Hefur þú hugleitt hvort að það geti verið barni þí­nu til góðs að ganga til liðs við skátahreyfinguna?