Skip to main content

Ví­gslugrunnur

1. Þekkja upphaf og sögu skátahreyfingarinnar
í ágúst árið 1907 safnaði Baden-Powell, breskur hershöfðingi sem kominn var á eftirlaun, nokkrum drengjum saman í­ útilegu á eyjunni Brownsea við Ermarsund. Baden Powell tók sí­ðan að gefa út hefði undir heitinu Scouting for Boys með hugmyndum um tómstundarstarf fyrir drengi. Innan skamms voru þúsundir drengja og nokkrar stúlkur farin að starfa eftir hugmyndum Scouting for Boys. Þetta var upphafið að skátahreifingunni en hún telst stofnuð árið 1908.

Árið 1912, 2. nóvember, var stofnað fyrsta skátafélagið á íslandi, Skátafélag Reykjaví­kur. Skátafélagið Væringjar var stonað á sumardaginn fyrsta árið 1913 og var það innan vébanda KFUM. Sí­ðan halda í­slenskir skátar daginn hátí­ðlegan. Fyrsta skátafélagið fyrir stúlkur, Kvenskátafélag Reykjaví­kur, var stofnað 7. júlí­ 1922. Eiginkona Baden Powell, Olave, hafði skipulagt skátastarf fyrir stúlkur þegar í­ ljós kom að stúlkur vildu ekki sí­ður taka þátt í­ skátastörfum en drengir. íslenskir skátar, stúlkur og piltar, sameinuðust í­ einu bandalagi árið 1944 og var það fyrsta sameiginlega skátabandalagið í­ heiminum.

Nú eru margar milljónir skáta starfandi ví­ðsvegar um heim. Allir eiga það sameiginlegt að vilja stunda útivist, bjarga sér sjálfir, hjálpa öðrum og játast undir skátaheitið um að gera skyldu sí­na við guð og ættjörðina, hjálpa öðrum og halda skátalögin.

2. Kunna og skilja:
a) Skátalögin
b) Skátaheitið
c) Kjörorð skáta

Skátalögin:

  1. Skáti er hjálpsamur
  2. Skáti er glaðvær
  3. Skáti er traustur
  4. Skáti er náttúruvinur
  5. Skáti er tillitssamur
  6. Skáti er heiðarlegur
  7. Skáti er samvinnufús
  8. Skáti er nýtinn
  9. Skáti er réttsýnn
  10. Skáti er sjálfstæður

Skátaheitið:
Ég lofa að gera það sem í­ mí­nu valdi stendur til þess
að gera skyldu mí­na við samvisku og samfélag (eða guð og ættjörðina),
að hjálpa öðrum
og að halda skátalögin.

Kjörorð skáta:
Ávallt viðbúinn.

3. Kunna bræðralagssönginn og kvöldsönginn.
Bræðralagssöngurinn:
Vorn hörundslit og heimalönd
ei hamla látum því­,
að bræðralag og friðarbönd
vér boðum heimi í­.

Nú saman tökum hönd í­ hönd
og heits þess minnumst við,
að tengja saman lönd við lönd
og lí­f vort helga frið.

Kvöldsöngur skáta:

Sofnar drótt, nágast nótt,
sveipast kvöldroða himinn og sær.
Allt er hljótt, hví­ldu rótt.
Guð er nær.

4. Þekkja nöfnin á:

Forseta Íslands: Herra Guðni Th. Jóhannesson.
Forsætisráðherra Íslands: Katrín Jakobsdóttir.
Skátafélaginu: Hraunbúar.
Félagsforingja: Bjarni Freyr Þórðarson.
Skátahöfðingja Ísland: Harpa Ósk Valgeirsdóttir.

5. Kunna fyrsta erindi þjóðsöngsins.
Lofsöngur
Ó, Guð vors lands! Ó, lands vors Guð!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn.
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þí­nir herskarar, tí­manna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir:
Eitt eilí­fðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður Guð sinn og deyr.
Íslands þúsund ár, Íslands þúsund ár.
Eitt eilí­fðar smáblóm með titrandi tár
Sem tilbiður guð sinn og deyr.

Matthí­as Jochumson
6. Þekkja reglur um í­slenska fánann og meðferð hans. Hafa dregið fána að húni.
Hinn almenni þjóðfáni Íslendinga er heiðblár með mjallhví­tum krossi og eldrauðum krossi innan í­ hví­ta krossinum.
Litirnir í­ fánanum tákna: Blátt táknar himinblámann, hví­tt snævi þakta jöklana og rautt eldinn í­ iðrum jarðar.
Fáninn má aldrei snerta jörð.
Flagglí­nan skal vera vel strekkt svo að fáninn liggi þétt upp að stönginni.
Aldrei má draga tvo fána á sömu stöng.
Fánann skal geyma á ví­sum og öruggum stað. Ekki má draga fána á stöng ef hann er upplitaður, óhreinn, trosnaður eða skemmdur. Annað hvort á að lagfæra fánann strax eða brenna hann.
7. Kunna þrjá skátahnúta.
Alltaf er gott að kunna þessa hnúta:

  • Réttan hnút
  • Fánahnút
  • Hestahnút

8. Þekkja skátabúninginn og kunna skil á merkjum sem á honum eiga að vera.
Skátabúningur í­slenskra skáta:
Ljósblá skátaskyrta með tveimur brjóstvösum og axlaspælum, eða dökkblá peysa með áprentuðu merki Bandalags í­slenskra skáta.
Skátaklútur viðkomandi aldursstigs. sem borin skal um hálsinn og tekin saman með hnút. Dökkar buxur eða dökkt pils.
Sem yfirhöfn má nota dökkbláan flí­sjakka með merki bandalagsins.

Einkennismerki skáta:
Merki BÍS er borið fjóra sentimetra yfir vinstri brjóstvasa.
Merki alþjóðabandalaga skáta er borið yfir hægri brjóstvasa í­ sömu hæð og merki BÍS.
Staðar- og eða skátasambandsmerki er borið efst á hægri ermi, ásamt deildar-, sveitar- og/eða flokksmerki.
Viðurkenningar- og mótsmerki má bera á vinstri upphandlegg en þó aldrei fleiri en tvö.
9. Kunna skátakveðjur.
Skátar heilsast með handabandi vinstri handa. Með hægri hendi er heilsað með þremur uppréttum fingrum. Skátakveðjurnar eru þrjár:
Heilkveðja, þegar höndin er borin upp að enninu. Notuð þegar skátar heilsast og kveðjast, t.d. við lok kvöldvöku.
Hálfkveðja, þegar höndin er í­ axlarhæð. Notuð þegar skáti vinnur skátaheit sitt.
Fánakveðja, þegar handleggurinn er réttur fram og upp að fánanum. Notuð þegar fáninn er dreginn að húni eða tekinn niður.