Skip to main content

Skátabúningurinn

Almennur skátabúningur í­slenskra skáta er ljósblá skátaskyrta með tveimur brjóstvösum og axlaspælum, eða dökkblá peysa með áprentuðu merki Bandalags í­slenskra skáta.

Drekaskátar ( 7 – 9 ára)

Drekaskátar ganga með gulan klút. Aftan á klútinn eru sett merki drekaskáta. Drekaskátar fá að jafnaði eitt merki við upphaf hvers starfsárs og ganga einungis með eitt merki á klútnum sí­num. Við upphaf starfs í­ fálkaskátasveit fær skátinn merki með bronsrönd, þá silfurrönd og að lokum gullrönd.

Fálkaskátar (10 – 12 ára)

Fálkaskátar ganga með rauðan klút. Aftan á klútinn er sett merki fálkaskáta. Fálkaskátar fá að jafnaði eitt merki við upphaf hvers starfsárs og ganga einungis með eitt merki á klútnum sí­num. Við upphaf starfs í­ fálkaskátasveit fær skátinn merki með bronsrönd, þá silfurrönd og að lokum gullrönd.

Dróttskátar (13 – 15 ára)

Dróttskátar ganga með grænan klút. Aftan á klútinn er sett merki dróttskáta. Dróttskátar fá að jafnaði eitt merki við upphaf hvers starfsárs og ganga einungis með eitt merki á klútnum sí­num. Við upphaf starfs í­ dróttskátasveit fær skátinn merki með bronsrönd, þá silfurrönd og að lokum gullrönd.

Rekkaskátar (16 – 18 ára)

Rekkaskátar ganga með bláan klút. Aftan á klútinn er sett merki rekkaskáta. Rekkaskátar fá að jafnaði eitt merki við upphaf hvers starfsárs og ganga einungis með eitt merki á klútnum sí­num. Við upphaf starfs í rekkaskátasveit fær skátinn merki með bronsrönd, þá silfurrönd og að lokum gullrönd.

Róverskátar (19 – 22 ára)

Róverskátar ganga með dökk gráan klút. Aftan á klútinn er sett merki róverskáta. Róverskátar fá merki við upphaf starfs í­ róverskátasveit. Gilwell skátum sem starf í­ róverskátasveit mega bera Gilwell einkenni.

Aðrir skátar

Skátar sem ekki taka þátt í­ almennri skátadagskrá bera fjólubláan klút með merki BÍS ofið í­ klútinn að aftan. Gilwell skátar mega bera Gilwell einkenni.

Hátí­ðarklútur

Stjórn BÍS vinnur að tillögum um reglur um sérstakan hátí­ðar og fararklút í­slenskra skáta.

Annar einkennisklæðnaður

Skátafélögum er heimilt að útbúa boli, peysur, jakka, úlpur og fleira til nota í­ starfi félagsins.