Drekaskátar fyrir 8-9 ára börn, fædd 2013 & 2014
Fundir 1x í viku, val um miðvikudaga eða fimmtudaga kl 17:30 -18:30.
Fyrsti fundur 31. ágúst.
Rauðúlfar
Fundir: Miðvikudaga kl. 17.30
Sveitarforingjar: Brynhildur Hafsteinsdóttir og Guðni Gíslason
Aðstoðarforingjar: Kjartan Ingólfsson og Sara Elísabet Jónsdóttir
Grábræður
Fundir: Fimmtudaga kl. 17.30
Sveitarforingjar: Bettý Jónsdóttir og Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir
Aðstoðarforingjar: Arnar Freyr Hallgrímsson og Þórdísa Lea Albertsdóttir
Starf drekaskáta
Skátarnir fást við margvísleg viðfangsefni á drekaskátaaldri. Þá einbeita skátarnir sér að mestu leyti að leikjum og skemmtilegum verkefnum sem styrkja ýmsa dýrmæta eiginleika svo sem traust, þolinmæði, samvinnu, samkennd og sjálfsbjargarviðleitni. Á þessum yngstu árum í skátastarfi öðlast skátarnir grunn í allskyns færni sem þau skerpa enn fremur á efri aldursbilum. Þrátt fyrir ungan aldur eru skyndihjálp, útieldun, rötun, náttúruvitund og útivera í ýmsum aðstæðum á meðal þess sem drekaskátar fá að reyna.
Vikulegir fundir drekaskáta
Yfir starfsárið hittast drekaskátar vikulega í skátaheimilinu. Dagskráin er fjölbreytt yfir árið en tekur iðulega mið af áhuga og getu hópsins ásamt árstíð hverju sinni. Á þessum vikulegu fundum kynnast skátarnir sífellt betur og öðlast smám saman færni til að takast á við stærri áskoranir.
Viðburðir
Drekaskátar fara gjarnan í styttri ferðir og útilegur með sínu skátafélagi en taka síðan þátt í hluta af lengri ferðum með eldri skátum félagsins s.s. félagsútilegum og skátamótum þar sem þau upplifa hvað bíður þeirra á efri aldursbilum skátastarfs. Á vegum Bandalags íslenskra skáta, landssamtaka skátafélaganna, eru árlega haldnir tveir viðburðir fyrir drekaskáta.
Drekaskátadagurinn er 4. mars á Álftanesi þar sem drekaskátar af öllu landinu koma saman og spreyta sig á ýmsum fjörugum áskorunum. Á hverju ári tekur eitt skátafélag viðburðinn að sér og býður öllum drekaskátum landsins og því fer viðburðurinn fram á ólíkum stað hverju sinni.
Drekaskátamótið verður 2.-4. júní á Úlfljótsvatni þar sem drekaskátar af öllu landinu koma saman, reisa tjaldbúð, taka þátt í fjölbreyttri dagskrá og gista eina nótt í tjaldi.