Skip to main content
Monthly Archives

May 2025

Sjö Hraunbúar fá Forsetamerkið

By Fréttir

Laugardaginn 29. mars síðastliðinn fóru 7 Hraunbúar á Bessastaði ásamt fleiri skátum að taka á móti Forsetamerkinu frá Frú Höllu Tómasdóttur. Þetta er í fyrsta skipti sem Halla afhendir skátum Forsetamerkið sem er 60 ára gömul hefð og skátar á aldrinum 17-20 ára geta unnið að því.

Það er langt ferðalag að vinna sér inn forsetamerkið sem tekur um þrjú ár með krefjandi verkefnum, markmiðasetnungum og endurmati.

Í þessu ferli upplifa skátarnir heilmikil ævintýri, takast á við áskoranir og þroskast í gegnum ferlið. Það er ekki sjálfgefið að komast alla leið og hafa þessir skátar sýnt mikla elju, dugnað og þrautsegju til að ná takmarkinu.

Hér má sjá Kjartan Ingólfsson, Arnar Frey Hallgrímsson, Brynhildi Þorbjörgu Þórhallsdóttur, Guðna Hannesson, Brynjar Inga Ágústsson, Gunnstein Hjalta Jónsson og Söru Elísabetu Jónsdóttur á töppunum fyrir Framan Bessastaðastofu að athöfn lokinni.

Útilífsskóli Hraunbúa

By Fréttir

Útilífsskóli Hraunbúa býður upp á útilífsnámskeið fyrir 8-12 ára (fædd 2013-2017)

Við leggjum upp með að vera með sitt hvort prógrammið fyrir dagsferðaviku
og útileguviku svo ef börn eru skráð á bæði námskeiðin fá þau sitt hvora
dagskrána.

Upplýsingar:

Námskeiðin hefjast kl. 09:00 í Skátaheimili Hraunbúa, Hjallabraut 51 og lýkur kl. 16:00 á sama stað (á viku B er sólarhringsútilega frá fimmtudegi til föstudags og eru börnum skutlað og sótt á Hvaleyrarvatn). Á föstudögum er heimferð klukkan 14 í A vikum og klukkan 12 í B vikum. Þátttakendur þurfa að koma klæddir eftir veðri því gert er ráð fyrir útiveru alla dagana. Eins þurfa þátttakendur að vera vel nestaðir fyrir langan og skemmtilegan dag.

Dagskrá er háð breytingum og upplýsingagjöf verður í hámarki.


Í viku A er áhersla lögð á útiveru í nágrenni Hraunbyrgis (Skátaheimili Hraunbúa) og náttúruna hér í kring. Vikunni lýkur svo með uppgjörshátíð á síðasta degi. Dagskrá lýkur klukkan 14 á föstudeginum. 

Í viku B er lögð áhersla á samvinnu, hópefli og útiveru. Vikunni lýkur svo með einnar nætur tjaldgistingu við Hvaleyrarvatn þar sem krakkarnir fá að kynnast tjaldbúðarlífi. Krökkunum er skutlað upp að Hvaleyravatni klukkan 09 og dagskrá lýkur klukkan 12 daginn eftir á Hvaleyravatni. 

Vika 1 – 10-13 júní – A vika

Víka 2 – 16-20 júní (frí 17 júní) B vika

Vika 3 – 23-27 júní – A vika

Vika 4 – 30 júní -4 júlí – B vika

Vika 5 – 7-11 júlí – A vika

Vika 6 – 14-18 júlí B vika

Skráning er hér: https://www.abler.io/shop/hraunbuar/1