Skip to main content
Monthly Archives

June 2026

84. Vormót Hraunbúa

By Fréttir

Síðastliðna Hvítasunnu var Vormót Hraunbúa haldið á Hamranesi eins og undanfarin ár. Vormótð í ár fékk nafnið “Vormót í vindi”.

Mótstjóri var Melkorka Thea Rósinberg Þrastardóttir og með henni var samhentur hópur og tókst þeim að halda vel skipulagt mót þar sem allt í allt komu um 250 skátar við sögu. 

Veðrið var eins við Hraunbúar viljum hafa það, milt og gott með passlega mikilli rigningu, gæti bara ekki verið betra. 

Dagskráin var svipuð því sem hefur verið undanfarin ár, boðið var upp á göngur, ratleiki, klútaföndur, útiledun, LARP, báta og fleira auk þess sem víkingarnir úr Rimmugýg heiðruðu okkur með nærveru sinni. Vormót í vindi var endurspeglað í dagskrá þar sem flugdrekagerð var í boði og heppnaðist mjög vel.

Skátapartý, kvöldvaka og kakó var allt á sínum stað rétt eins og vera ber.

Við vorum svo lánsöm að í ár mættu til okkar skátar úr Mosverjum, Kópum, Ægisbúum, Árbúum, Landnemum, Skjöldunum, Faxa og Snúðum. Það er einmitt svona sem við viljum hafa þetta, fullt af vinum úr sem flestum félögum og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna og hlökkum til að hitta þau á Landsmóti í sumar.

Það er ekki hægt að halda svona Vormót án þess að fá aðstoð frá baklandinu okkar og það voru ansi margir sem lögðu hönd á plóg enda mörg handtökin við að setja mótið upp, halda því gangandi og taka það svo niður. Gildið, fullorðnir í félaginu, BSH, foreldrar, Hafnarfjarðarbær og fleiri, takk, takk, takk. Það sem þið gefið af ykkur er ómetanlegt og án ykkar hefðu allir þessir skátar ekki getað upplifað Vormót og farið heim þreytt með ótlejandi minningar og ný vinabönd.

Það er eiginlega ekki hægt að setja þetta allt í orð svo við mælum með að þú lesandi góður skellir þér á instagram, skatafelagidhraubuar og skoðir highlights: Vormót26, þar færðu að sjá brot af því sem við vorum að brasa og vonandi kemur þú og nýtur þess að vera með okkur um Hvítasunnuna á næsta ári.