Þann 26. febrúar 2026, færðu Kiwanisklúbburinn Sólborg Hraunbúum sex ný tjöld að gjöf. Tjöldin voru afhent á félagskvöldvöku og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Fyrir skátafélag eins og okkar skiptir góður útivistarbúnaður miklu máli. Tjöldin munu nýtast beint í starfinu og koma að góðum notum í útilegum og ferðum á næstu árum.
Það er mikilvægt fyrir félagið að finna stuðning úr nærumhverfinu og við erum afar þakklát fyrir þennan hlýhug og stuðning frá Kiwanisklúbbnum Sólborg.
Hraunbúar þökkum kærlega fyrir þessa veglegu gjöf.



