Skátastarf Hraunbúa er að byrja aftur eftir sumarfrí!
Hjá Hraunbúum er skátastarf fyrir allan aldur og við hvetjum alla til að kíkja við og kynnast okkur.
Frítt að prófa í september en nauðsynlegt að skrá börnin á Sportabler.
Skráning hefst 1 september 2023.
Drekaskátar
Fyrir börn 8-9 ára, fædd 2014-2015
Skátarnir fást við margvísleg viðfangsefni á drekaskátaaldri. Þá einbeita skátarnir sér að mestu leyti að leikjum og skemmtilegum verkefnum sem styrkja ýmsa dýrmæta eiginleika svo sem traust, þolinmæði, samvisku, samkennd og sjálfsbjargarviðleitni.
Fundir eru einu sinni í viku og hægt er að velja á milli mánudaga eða miðvikudaga, og hefjast fundir 28. ágúst.
- Mánudagar kl 17:30-18:30
Foringjar: Kristjana og Bryna - Miðvikudagar kl 17:30-18:30
Foringi: Thelma Líf
Fálkaskátar
Fyrir börn 10-12 ára, fædd 2011-2013
Á þessum aldri fá skátarnir meiru ráðið um eigin dagskrá og geta mótað dagskráráherslur eftir því hvar þeirra eigin áhugi liggur en áhersla er lögð á útivist, ferðamennsku, lýðræði, sköpun, samvinnu og samfélag. Fálkaskátar öðlast víðtæka kunnáttu og mæta ögrandi áskorunum sem styrkja samtímis útsjónarsemi þeirra, kjark og sjálfsöruggi.
Fundir eru einu sinni í viku og hægt er að velja á milli miðvikudaga eða fimtudaga, og hefjast fundir 30. ágúst.
- Miðvikudagar 18:30-20:00
Foringjar: Thelma og Jakob - Fimtudagar 18:30-20:00
Foringjar: Thelma og Jakob
Dróttskátar
Fyrir börn 13-15 ára, fædd 2008-2010
Dróttskátar eru í virkara samráði við sína foringja um eigið starf og hljóta þannig aukið frelsi til að hrinda eigin hugmyndum í framkvæmd. Samhliða því vex ábyrgð þeirra á eigin starfi og á starfinu í skátafélaginu.
Fundir eru einu sinni í viku á þriðjudögum, og er fyrsti fundur 29. ágúst.
- Þriðjudagar kl 18:00-20:00
Foringjar: Harpa Hrönn og Erna Mjöll
Rekkaskátar
Fyrir börn 16-18 ára, fædd 2005-2007
Rekkaskátum býðst að taka þátt í ýmsum spennandi viðburðum bæði innanlands og utan og byrja rekkaskátar því gjarnan að mynda tengsl við aðra skáta þvert yfir hnöttinn. Á rekkaskátaaldri byrja flestir að sinna foringjastörfum eða öðrum hlutverkum innan skátafélaganna og því er boðið upp á fjölda námskeiða í leiðtogaþjálfun.
Fundir eru einu sinni í viku á þriðjudögum, og er fyrsti fundurinn 22. ágúst
- Þriðjudagar 20:00-22:00
Foringjar: Valdís og Alex