Skip to main content
All Posts By

Bjarni Freyr Þórðarson

Öflugt framboð til stjórnar á komandi aðalfundi

By Fréttir

Uppstillingarnefnd hefur lokið störfum vegna komandi aðalfundar félagsins og er ánægjulegt að greina frá því að framboð til stjórnar eru fleiri en þau sæti sem kjósa þarf um.

Ólíkt því sem oft áður hefur verið þurfti nefndin ekki að hvetja einstaklinga sérstaklega til framboðs. Að þessu sinni höfðu fleiri samband að eigin frumkvæði og lýstu yfir vilja til að taka þátt í starfi stjórnar. Það er afar jákvætt merki um kraft og áhuga innan félagsins.

Núverandi stjórn – ekki í kosningu:

Eftirfarandi sitja áfram í stjórn:

  • Bjarni Freyr Þórðarson, félagsforingi
  • Harpa Kolbeinsdóttir, ritari
  • Dagný Lind Pálsdóttir, meðstjórnandi

Bjóða sig fram áfram til stjórnar

  • Guðvarður Björgvin Fannberg Ólafsson, meðstjórnandi
  • Kristján Ingi Þórðarson, aðstoðarfélagsforingi
    (meðstjórnandi verði samþykkt lagabreyting)
  • Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, gjaldkeri
    (meðstjórnandi verði samþykkt lagabreyting)

Ný framboð til meðstjórnenda

  • Haukur Freyr Ólafsson, sveitarforingi í fálkaskátum
  • Jónina Sigríður Grímsdóttir (Ninna), foreldri í fálkaskátum

Framboð til varamanna (og meðstjórnenda verði lagabreyting samþykkt)

  • Bragi Reynisson, varamaður, býður sig fram áfram
  • Jakob Heimir Burgel Ingvarsson, deildarforingi og formaður foringjaráðs

Framboðin endurspegla breidd og fjölbreytileika í starfi félagsins – þar mætast reynsla, ný sýn og sterkur vilji til að byggja áfram upp öflugt og metnaðarfullt starf. Það er dýrmætt að sjá bæði reynslumikla leiðtoga og ný andlit stíga fram og bjóða sig fram til ábyrgðar.

Aðalfundur er lýðræðislegur hjartsláttur félagsins. Þar tökum við sameiginlega ákvörðun um hver leiðir starfið næsta starfsár og mótum um leið stefnu og forgangsröðun til framtíðar.

Við hvetjum félagsmenn til að mæta, kynna sér framboðin og taka virkan þátt.

Kynningar frá frambjóðendum:

Kristján Ingi:

Ég heiti Kristján Ingi Þórðarson og bý í Laugardal í Reykjavík. Ég er í framboði til aðstoðarfélagsforingja hjá Skátafélagið Hraunbúar og hef gegnt þeirri stöðu frá miðju ári 2025. Ég hóf skátastarf árið 2007 og hef starfað sem sveitarforingi frá árinu 2015. Ég hef setið í stjórn félagsins sem meðstjórnandi frá 2022 og sem aðstoðarfélagsforingi frá 2025. Í gegnum árin hef ég komið að fjölbreyttum verkefnum, meðal annars umbunarferðum, skipulagningu viðburða, gjafamálum og nú síðast vinnu við uppbyggingu nýs skála. Utan skátastarfs starfa ég sem byggingartæknifræðingur á verkfræðistofu, þar sem ég sinni ráðgjöf í innivistarverkefnum. Menntun mín er húsasmiðameistari og byggingartæknifræðingur. Mér finnst sérstaklega gaman að ferðast og fara í útilegur með vinum og fjölskyldu, enda er útivist og samvera mikilvægur hluti af bæði skátastarfi og daglegu lífi.

Villi:

Ég heiti Vilhjálmur Þór Sigurjónsson og er alinn upp í Borgarnesi. Ég byrjaði í skátafélagi Borgarness og gekk síðar til liðs við Hraunbúa þegar ég flutti í Hafnarfjörð. Skátastarfið hefur gefið mér dýrmæta reynslu í samstarfi, áskorunum og útivist. Ég er einnig foreldri og eiginmaður virkra félaga og því býð ég krafta mína fram til stjórnarstarfa.

Bragi:

Ég er 41 árs skáti úr Hafnarfirði sem hóf minn skátaferil 9 ára í Hraunbúum. Ég var mjög virkur innan félagsins sem barn og færði mig svo um set á unglingsárum og stofnaði meðal annars Tækniskáta, lítið skátafélag skáta af höfuðborgarsvæðinu sem höfðu dálæti af tækni í skátastarfi. Ég kom aftur inn í stjórn 2008 og starfaði í tvö ár sem aðstoðar félagsforingi og fór meðal annars sem sveitarforingi Hraunbúa á Alheimsmót skáta í Englandi. Þegar strákarnir mínir komu inn í Hraunbúa árið 2023 steig ég aftur inn í stjórn sem virkur varamaður og hef verið þar hluti af stjórn bæði Hraunbúa og Ferðbúans síðan. Undanfarin ár hef ég því verið einn af fulltrúum foreldra í stjórn Hraunbúa. Í dag starfa ég með þrem stjórnun, Skátafélaginu Hraunbúum, Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Ský sem meðal annars heldur UT-Messuna í Hörpu ár hvert. Í dag er ég á milli starfa en er að færa mig úr stöðu Forstöðumanns tæknirekstrar hjá Ljósleiðaranum í starf Framkvæmdastjóra Gaflara Rafverktaka.  

Ég er menntaður Rafvirki en lauk einnig námi viðTækniteiknun, stúdent og B.S. gráðu í Viðskiptafræði. Þessi misserin stunda ég nám við Meistaraskóla rafiðnaðar og stefni á útskrift sem Rafvirkjameistari vorið 2027.

Haukur:

Hæ öll! Ég heiti Haukur Freyr og gef kost á mér í stjórn Hraunbúa fyrir komandi starfsár. Skátastarfið hefur mótað mig mikið í gegnum tíðina og mig langar að leggja mitt af mörkum til að halda áfram að byggja upp öflugt og skemmtilegt starf fyrir félagið okkar. Ég byrjaði sjálfur í drekaskátum og hef verið stanslaust síðan, eða í um 11 ár. Reynsla mín innan félagsins: • Foringjastörf: Ég starfaði sem aðstoðarforingi í drekaskátum í tvö ár og færði mig svo yfir í fálkaskátana. Eftir stutta pásu sneri ég aftur af fullum krafti í ársbyrjun 2024 og tók svo við sem sveitarforingi í fálkaskátum síðastliðið haust, þar sem ég starfa enn. • Viðburðir: Á síðasta vormóti fékk ég það skemmtilega verkefni að vera mótsstjóri. Það var krefjandi en ótrúlega lærdómsríkt að stýra flottum hópi úr rekkaskátunum við skipulagninguna. Ég er mjög þakklátur fyrir allt sem Hraunbúar hafa gefið mér í gegnum tíðina. Mér finnst spennandi tækifæri að fá að sitja í stjórn og hjálpa til við að gera félagið okkar enn öflugra og skemmtilegra fyrir næstu kynslóðir skáta.

Jakob:

Eg heiti Jakob, er 27 ára bakari hjá Bæjarbakarí. Hef lokið Gilwellþjálfun og er Spæta. Ég hef verið í skátunum í að ég held 19 ár. Starfað við hin ýmsu verkefni. Ég byrjaði sem Fossbúi sem barn og var þar í 15 ár, þar af 7 sem foringi og 5 í stjórn. Eg færði mig yfir í Hraunbúa haustið 2021 og hef starfað sem foringi síðan þá. Fyrstu þrjú árin sem fálkaskáta foringi og núna sem deildarforingi Dróttskáta. Ég hef einnig starfað sem formaður félagsráðs og sit sem áheyrnarfulltrúi á stjórnarfundum. Núna sit ég í fararstjórn Landsmóts skáta þar sem við erum stærsta íslenska félagið og verð sveitarforingi á Jamboree 2027. Einnig sat ég sem dagskrárforingi Skátafélagsins Vífils í tvö ár 23-25.

Ninna:

Jónína Sigríður Grímsdóttir heiti ég oftast kölluð Ninna. Ég er spánýr skáti, lauk nýverið sjálfboðaliðanámskeiði á vegum BÍS og var svo heppin að ná að fara á Neista núna í janúar. Ég á einn fálkaskáta hérna í Hraunbúum og fylltist mikilli löngun að fá að vera með í starfinu í gengum hann. Konan mín var einnig í skátastarfi þegar hún var krakki, í Vífli, svo ég tók málin í mínar hendur og hætti að vera útundan. Ég hef setið í allskonar stjórnum í gegnum tíðina. Lengst af í stjórn Neistans styrktarfélags hjartveikra barna og fullorðina, en einnig í stjórn Q félags hinsegin námsmanna, starfsmannafélags 10-11 er búin að vera bekkjatengill í bekk sonar míns síðustu árin. Hef haldið utanum allskonar viðburði á vegum þessara félaga. Ég hef gaman af matseld, brasi og skipulagningu, hef unnið bæði í framreiðslu eldhúsi og framleiðslu eldhúsi. Núna vinn ég fyrir Neistann. Er skrifstofustjóri og sé um daglegan rekstur í samstarfi við stjórn félagsins.

Beggi:

Ég heiti Guðvarður Björgvinn Fannberg Ólafsson – líklega með næstlengsta nafnið í Skátafélaginu Hraunbúum – en flestir þekkja mig einfaldlega sem *Begga*.

Ég er giftur Hrefnu Sif Gísladóttur hjúkrunarfræðingi og saman eigum við fjögur börn á aldrinum 4–14 ára. Ég er fæddur 24. maí 1977 og verð því 49 ára á árinu. Í dag starfa ég sem ráðgjafi á upplýsingatæknisviði Arion banka og stunda jafnframt nám í húsasmíði á kvöldin – því það er alltaf gott að kunna bæði að byggja bæði framtíð og innviði.

Hraunbúi frá barnsaldri

Ég hef verið Hraunbúi frá því ég var krakki og skátastarfið í Hafnarfirði hefur fylgt mér alla tíð. Eftir nokkurra ára hlé um tíma aldamóta tók ég aftur virkan þátt í starfi félagsins og stofnaði sveitina *Tölvuálfa*, sem er enn starfandi í dag.

Ég sat í stjórn félagsins 2004–2006 sem ritari og tók árið 2006 við starfi *félagsforingja*, sem ég sinnti til ársins 2009. Það voru afar lærdómsrík ár sem mótuðu sýn mína á mikilvægi sterkrar stjórnar, skýrrar stefnu og góðs samstarfs innan félagsins.

Árið 2005 fékk ég *Gilwell-einkenni* og er í flokknum *Gaukum*. Sú þjálfun og tengslanet sem fylgdu Gilwell-náminu hafa reynst mér afar dýrmæt í leiðtogastarfi innan skátahreyfingarinnar.

Að loknu starfi félagsforingja tók ég að mér hlutverk gildismeistara St. Georgsgildisins í Hafnarfirði og síðar vara landsgildismeistara í eitt tímabil.


Mót, verkefni og þátttaka

Í gegnum tíðina hef ég tekið þátt í skipulagi og stjórnun fjölmargra skátamóta. Þar má meðal annars nefna:
– Mótsstjórn á fyrsta EuroMiniJam sem haldið var á Íslandi
– Mótsnefnd Roverway 2009 þegar það var haldið hérlendis – Mótsnefndum Vormóta Hraunbúa
– Og ýmis önnur verkefni í þágu skátastarfsins Skátastarfið hefur alltaf verið fyrir mér meira en fundir og mót
– það er samfélag, uppeldi og vettvangur til að efla ungt fólk til ábyrgðar og sjálfstæðis.

Stjórnarseta og framtíðarsýn

Frá árinu 2021 hef ég setið í stjórn Skátafélagsins Hraunbúa og gef nú kost á mér til áframhaldandi stjórnarsetu.

Fram undan eru stór og mikilvæg verkefni sem munu móta starf félagsins til framtíðar. Þar má nefna:
– Uppbyggingu nýs skála sem verður hjarta félagsstarfsins næstu áratugi
– Varanlega og trausta lausn fyrir tjaldsvæði bæjarins sem félagið rekur
– Markvissa styrkingu innviða og skýra langtímasýn fyrir starfsemi Hraunbúa

Þetta eru verkefni sem krefjast ábyrgðar, festu og góðrar samvinnu. Ég tel að reynsla mín af fyrri stjórnarsetu, félagaforingjastarfi og verkefnastjórnun nýtist vel í þeirri vegferð. Ég er tilbúinn að halda áfram að vinna af heilindum að því að tryggja félaginu traustan grunn og skýra stefnu til framtíðar. —

Lokaorð

Hraunbúar eru ekki bara félag fyrir mig – þeir eru hluti af minni sögu, mínu uppeldi og mínu samfélagi. Ég vil áfram leggja mitt af mörkum svo félagið okkar standi sterkt, öruggt og metnaðarfullt til framtíðar. Ég óska eftir stuðningi ykkar og atkvæði á komandi aðalfundi.

Fyrirhugaðar lagabreytingar á aðalfundi

By Fréttir

Á komandi aðalfundi verða lagðar fram nokkrar tillögur að breytingum á lögum félagsins.
Markmið breytinganna er fyrst og fremst að einfalda verklag, nútímavæða boðunar- og upplýsingamiðlun og skýra skipan stjórnar þannig að hún endurspegli betur starf félagsins í dag.

Hér að neðan er yfirlit yfir helstu breytingar og tilgang þeirra:


Breytingartillaga 1 – Boðun aðalfundar (3.2)

Lagt er til að boðun aðalfundar fari fram:

  • Með auglýsingu á heimasíðu félagsins
  • Og með tölvupósti til allra Hraunbúa

Í stað auglýsingar í Hraunbyrgi og bréflegs boðunar.

Tilgangur:
Að færa boðun alfarið yfir í rafrænt form og samræma verklag nútíma samskiptaháttum, án þess að draga úr fyrirvara eða upplýsingagjöf.


Breytingartillaga 2 – Skýrsla stjórnar og ársreikningar (3.5)

Lagt er til að:

  • Skýrsla stjórnar geti legið fyrir rafrænt á miðlum félagsins
  • Ársreikningar verði lagðir fram á stjórnarfundi minnst viku fyrir aðalfund

Tilgangur:
Að tryggja gagnsæi og faglegt ferli við yfirferð reikninga og jafnframt nýta rafræna miðlun gagna í stað pappírsafrita.


Breytingartillaga 3 – Skipan stjórnar (3.6)

Stjórn verði skipuð:

  • Félagsforingja og átta meðstjórnendum (alls níu einstaklingum)

Fallið er frá því að kjósa í fyrirfram skilgreind embætti (ritara, gjaldkera o.fl.) á aðalfundi.
Í stað þess mun stjórn skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund og getur endurskoðað verkaskiptingu síðar ef þörf krefur.

Skylt verður að skipa:

  • Gjaldkera
  • Formann skálanefndar
  • Dagskrárforingja
  • Sjálfboðaliðaforingja

Jafnframt er fallið frá sérstakri kosningu varamanna.

Tilgangur:
Að skapa sveigjanlegri og virkari stjórn þar sem hlutverk ráðast af styrkleikum og aðstæðum hverju sinni, fremur en föstum titlum.
Markmiðið er einnig að tryggja að lykilhlutverk innan félagsins séu skýr og virk.


Breytingartillaga 4 – Skipun í stjórn milli aðalfunda (3.7)

Lagt er til að stjórn fái heimild til að skipa nýjan meðlim í stjórn ef einstaklingur fellur frá stjórnarsetu á miðju kjörtímabili.

Ef fleiri en tveir stjórnarmenn víkja milli aðalfunda skal boða til aðalfundar.
Ef félagsforingi víkur skal einnig boða til aðalfundar, en stjórn getur skipað tímabundinn félagsforingja fram að því.

Tilgangur:
Að tryggja eðlilega og skilvirka stjórnsýslu milli aðalfunda og koma í veg fyrir óþarfa bið eða formfasta flækju þegar upp koma einfaldar aðstæður.


Breytingartillaga 5 – Lagabreytingar (5.4)

Tillagan felur í sér nútímavæðingu á birtingu og aðgengi að tillögum, meðal annars með rafrænum miðlum félagsins.

Óbreytt er krafa um að 2/3 kosningabærra fundarmanna þurfi að samþykkja lagabreytingar svo þær öðlist gildi.

Tilgangur:
Að halda fast í lýðræðislega vernd laganna en uppfæra framkvæmdina til samræmis við nútímalegt starfshætti.

Hér fyrir neðan má sjá lagabreytingarnar orðréttar:

Gilwell foringjaþjálfun – útskriftarhópur Hraunbúa

Sjö Hraunbúar ljúka Gilwell þjálfun

By Fréttir, Greinar
Gilwell foringjaþjálfun – útskriftarhópur Hraunbúa
Gilwell foringjaþjálfun – útskriftarhópur Hraunbúa

Um helgina lauk Gilwell foringjaþjálfun skáta með glæsilegum hætti og þar náðu sjö félagar úr Skátafélaginu Hraunbúum þessum merka áfanga. Alls útskrifuðust níu þátttakendur að þessu sinni og voru Hraunbúar því í yfirgnæfandi meirihluta hópsins.

Gilwell foringjaþjálfun er ein virtasta leiðtogaþjálfun sem skátahreyfingin býður upp á. Námið byggir á alþjóðlegri Gilwell-hefð sem á rætur sínar í upphafi skátastarfs og leggur ríka áherslu á forystu, ábyrgð, sjálfsþekkingu og færni í skipulagningu og leiðslu fólks. Þjálfunin sameinar fræði og verklega reynslu, þar sem þátttakendur takast á við raunveruleg verkefni og læra jafnframt að vinna saman sem öflugt teymi.

Að ljúka þessari foringjaþjálfun er bæði persónulegur áfangi og mikilvægur styrkur fyrir skátastarf í heild. Þeir sem klára námið koma til baka með aukið öryggi í forystu, dýpri skilning á hlutverki foringjans og nýjar hugmyndir sem nýtast beint í starfi með börnum og ungmennum.

Útskrifaðir Gilwell-foringjar úr Hraunbúum

  • Bjarni Freyr Þórðarson
  • Brynjar Örn Svavarsson
  • Eiríkur Kristbjörnsson – Eiki
  • Jóhanna Björg Þuríðardóttir – Jófó
  • Sandra Björk Bragadóttir
  • Sandra Mey Pálsdóttir
  • Tanía Björk Gísladóttir

Auk þess styrkir þjálfunin ekki aðeins einstaklinga heldur allt starf félagsins. Með fleiri þjálfuðum foringjum eykst stöðugleiki í starfinu, samfella milli aldurshópa og geta félagsins til að takast á við ný verkefni og aukna þátttöku barna og ungmenna.

Þessi árangur endurspeglar einnig markvissa áherslu Hraunbúa á menntun og þjálfun foringja. Slík uppbygging er grundvöllur öflugs sjálfboðaliðastarfs og tryggir að börn og ungmenni njóti faglegs, öruggs og metnaðarfulls skátastarfs.

Skátafélagið Hraunbúar óskar öllum útskrifuðum innilega til hamingju með árangurinn og er sérstaklega stolt af þeim sjö Hraunbúum sem nú bætast í hóp Gilwell-foringja félagsins. Þessi árangur er skýr vitnisburður um öflugt og metnaðarfullt foringjastarf innan félagsins og styrkir enn frekar grunninn að öflugu skátastarfi í Hafnarfirði.

Aðalfundarboð 2026

By Fréttir

Aðalfundur Hraunbúa 2026 fer fram í Hraunbyrgi þriðjudaginn 24. febrúar 2026 kl. 20:00. Samkvæmt lögum félagsins um kosningarétt hafa allir starfandi skátar, 16 ára og eldri, auk eins forráðamanns hvers skáta undir 16 ára aldri kosningarétt, en aðrir geta setið fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Sjá nánar í grein 3.3. úr lögum félagsins. 

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu ef árgjöld skátans er í skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi. Fulltrúi úr stjórn BÍS á seturétt sem áheyrnarfulltrúi á aðalfundi. Félagsstjórn er heimilt að bjóða öðrum að sitja aðalfund sem áheyrnarfulltrúar. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. 

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

  1. a)      Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. b)      Skýrsla stjórnar.
  3. c)      Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
  4. d)      Umræður um framlagðar skýrslur.
  5. e)      Lagðir fram yfirfarnir ársreikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  6. f)       Lagabreytingar.
  7. g)      Kynning frambjóðenda.
  8. h)      Kosning stjórnar.
  9. i)       Kosning tveggja varamanna stjórnar
  10. j)       Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
  11. k)      Kosning þriggja manna í laganefnd.
  12. l)       Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
  13. m)     Kosning skálanefndar.
  14. n)      Önnur mál.

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, sem varamenn eða í nefndir er bent á að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa: 

Harpa Hrönn Grétarsdóttir, s. 846 3623 harpa@hraunbuar.is
Erna Mjöll Grétarsdóttir, s. 897 3763 ernamjoll@hotmail.com
Sindri Friðriksson, s. 862 1680 sindri@hraunbuar.is

Núverandi lög félagsins eru á vefsíðu okkar: www.hraunbuar.is/felagid/log-felagsins

Hlökkum til að sjá ykkur.

Aðför að rekstri Hraunbúa – Uppfært

By Fréttir

Til hamingju með 100 ára afmælið! – Hér er blaut tuska í andlitið…

Stjórnsýsla Hafnarfjarðarbæjar hefur nú sagt upp samstarfssamningi við Skátafélagið Hraunbúa, ákvörðun sem kemur félaginu í opna skjöldu og mjög viðkvæmt ástand. Ástæða uppsagnar er ágreiningur milli málsaðila um viðhald á tjaldsvæði bæjarbúa, tjaldsvæði sem Skátafélagið Hraunbúar hafa rekið í yfir 30 ár í farsælu samstarfi við bæinn.

Félagið harmar ákvörðun bæjarins að segja samningnum upp einhliða en samningurinn er grundvöllur fyrir öflugu og vönduðu æskulýðsstarfi í bænum. Ákvörðunin sýnir í verki hvernig fulltrúar bæjarins standa hreinlega í vegi fyrir uppbyggingu æskulýðsstarfs í bænum. Samningnum er sagt upp í miðri samningalotu um sérstakt viðhald á tjaldsvæðinu en svæðið kom mjög illa undan rigningasumri 2024. Bærinn segir ábyrgð á viðhaldi vera okkar þrátt fyrir að í samningi standi greinilega að allt stærra viðhald skuli greitt samkvæmt eignaskiptasamningi en bærinn er eini eigandi tjaldsvæðis og þjónustuhúsi þess.

Samningurinn sem nú hefur verið sagt upp nær mun víðar en til reksturs tjaldsvæðis á Víðistaðatúni. Hann tryggir grundvöll skátastarfs í Hraunbyrgi – eina skátaheimili landsins sem hannað er sérstaklega með þarfir barna og ungmenna í huga og styður við mikilvægt starf sem hefur byggst upp með ómetanlegri sjálfboðavinnu í yfir 100 ár.

Með þessari aðgerð er verið að slíta lífæð skátastarfsins í bænum. Tekjur tjaldsvæðisins hafa verið lykilþáttur í að halda úti starfi félagsins, standa undir húsnæðisrekstri og ráða starfsfólk allt árið um kring. Á fundum hafa bæjarstarfsmenn jafnvel lýst yfir vilja til að loka tjaldsvæðinu, án þess að leggja fram neina skýra framtíðarsýn eða greiningu á áhrifum þess á barna- og ungmennastarf í bænum. Nú blasir við sviðsmynd þar sem bæjarfélagið lokar tjaldsvæðinu, skerðir tekjuforsendur félagsins og getur þannig óbeint leitt til þess að Hraunbyrgi loki – með ófyrirséðum áhrifum á skátastarf barna í Hafnarfirði.

Það er mat okkar að þessi ákvörðun endurspegli dýpri vanda í stjórnsýslu bæjarins – þar sem samstarf við frjáls félagasamtök er ekki byggt á gagnkvæmu trausti, heldur einhliða túlkunum, valdboði og ítrekaðri vanrækslu á samtali og samráði. Starfsmenn hafa sýnt skýr merki um valdníðslu í meðhöndlun þessa máls og látið hjá líða að svara málefnalegum erindum Hraunbúa. Þess í stað er leitað að tæknilegum leiðum til að loka á starfsemi sem þjónar bæði beint og óbeint hundruðum barna og ungmenna ár hvert. Á sama tíma er milljörðum af peningum bæjarbúa eytt í knatthús og önnur íþróttamannvirki.

Við teljum þetta alvarlega aðför að öflugu og sjálfboðadrifnu félagi sem hefur í heila öld lagt sitt af mörkum til samfélagsins — ekki aðeins fyrir skátahreyfinguna heldur fyrir bæjarbúa alla, m.a. með þjónustu við ferðamenn, menningarviðburði, og hátíðisdaga. Við köllum eftir því að bæjarfulltrúar axli ábyrgð, endurskoði þessa ákvörðun og stöðvi aðför gegn öflugasta skátafélagi landsins, skátafélag sem bæjarbúar allir geta verið stoltir af.
Við stöndum ekki ein – og við ætlum ekki að gefast upp.

Fyrir hönd Skátafélagsins Hraunbúa,
Bjarni Freyr Þórðarson
Félagsforingi

 

Uppfærsla 2.júní 2025
Bærinn hefur ógilt þessa uppsögn og halda samningsviðræður því áfram á jákvæðari grundvelli.

 

Aðalfundur 2025

By Fréttir

Aðalfundarboð

Aðalfundur Hraunbúa 2025 fer fram í Hraunbyrgi miðvikudaginn 26. febrúar 2025 kl. 20:00. Samkvæmt lögum félagsins um kosningarétt hafa allir starfandi skátar, 16 ára og eldri, auk eins forráðamanns hvers skáta undir 16 ára aldri kosningarétt, en aðrir geta setið fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Sjá nánar í grein 3.3. úr lögum félagsins. 

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu ef árgjöld skátans er í skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi. Fulltrúi úr stjórn BÍS á seturétt sem áheyrnarfulltrúi á aðalfundi. Félagsstjórn er heimilt að bjóða öðrum að sitja aðalfund sem áheyrnarfulltrúar. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. 

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

  1. a)      Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. b)      Skýrsla stjórnar.
  3. c)      Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
  4. d)      Umræður um framlagðar skýrslur.
  5. e)      Lagðir fram yfirfarnir ársreikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  6. f)       Lagabreytingar.
  7. g)      Kynning frambjóðenda.
  8. h)      Kosning stjórnar.
  9. i)       Kosning tveggja varamanna stjórnar
  10. j)       Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
  11. k)      Kosning þriggja manna í laganefnd.
  12. l)       Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
  13. m)     Kosning skálanefndar.
  14. n)      Önnur mál.

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, sem varamenn eða í nefndir er bent á að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa: 

Harpa Hrönn Grétarsdóttir, s. 846 3623 harpa@hraunbuar.is
Erna Mjöll Grétarsdóttir, s. 897 3763 ernamjoll@hotmail.com
Sindri Friðriksson, s. 862 1680 sindri@hraunbuar.is

Núverandi lög félagsins eru á vefsíðu okkar: www.hraunbuar.is/felagid/log-felagsins

Hlökkum til að sjá ykkur.

Aðalfundur 2024

By Fréttir

Aðalfundarboð

Aðalfundur Hraunbúa 2024 fer fram í Hraunbyrgi þriðjudaginn 27. febrúar 2024 kl. 20:00. Samkvæmt lögum félagsins um kosningarétt hafa allir starfandi skátar, 16 ára og eldri, auk eins forráðamanns hvers skáta undir 16 ára aldri kosningarétt, en aðrir geta setið fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Sjá nánar í grein 3.3. úr lögum félagsins. 

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu ef árgjöld skátans er í skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi. Fulltrúi úr stjórn BÍS á seturétt sem áheyrnarfulltrúi á aðalfundi. Félagsstjórn er heimilt að bjóða öðrum að sitja aðalfund sem áheyrnarfulltrúar. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. 

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

  1. a)      Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. b)      Skýrsla stjórnar.
  3. c)      Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
  4. d)      Umræður um framlagðar skýrslur.
  5. e)      Lagðir fram yfirfarnir ársreikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  6. f)       Lagabreytingar.
  7. g)      Kynning frambjóðenda.
  8. h)      Kosning stjórnar.
  9. i)       Kosning tveggja varamanna stjórnar
  10. j)       Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
  11. k)      Kosning þriggja manna í laganefnd.
  12. l)       Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
  13. m)     Kosning skálanefndar.
  14. n)      Önnur mál.

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, sem varamenn eða í nefndir er bent á að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa: 

Harpa Hrönn Grétarsdóttir, s. 846 3623 harpa@hraunbuar.is
Erna Mjöll Grétarsdóttir, s. 897 3763 ernamjoll@hotmail.com
Sindri Friðriksson, s. 862 1680 sindri@hraunbuar.is

Núverandi lög félagsins eru á vefsíðu okkar: www.hraunbuar.is/felagid/log-felagsins

Hlökkum til að sjá ykkur.

Auka-aðalfundur 2023

By Fréttir

Aðalfundarboð – Aukafundur

Auka-aðalfundur Hraunbúa 2023 fer fram í Hraunbyrgi mánudaginn 19. júní 2023 kl. 20:00. Samkvæmt lögum félagsins um kosningarétt hafa allir starfandi skátar, 16 ára og eldri, auk eins forráðamanns hvers skáta undir 16 ára aldri kosningarétt, en aðrir geta setið fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Sjá nánar í grein 3.3. úr lögum félagsins. 

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu ef árgjöld skátans er í skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi. Fulltrúi úr stjórn BÍS á seturétt sem áheyrnarfulltrúi á aðalfundi. Félagsstjórn er heimilt að bjóða öðrum að sitja aðalfund sem áheyrnarfulltrúar. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. 

Dagskrá aukafundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Lagðir fram yfirfarnir ársreikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  3. Kosning stjórnar (einungis er kosið í eitt sæti í stjórn)
  4. Önnur mál.

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn er bent á að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa: 

Harpa Hrönn Grétarsdóttir, s. 846 3623 harpa@hraunbuar.is
Erna Mjöll Grétarsdóttir, s. 897 3763 ernamjoll@hotmail.com
Sindri Friðriksson, s. 862 1680 sindri@hraunbuar.is

Núverandi lög félagsins eru á vefsíðu okkar: www.hraunbuar.is/felagid/log-felagsins