Uppstillingarnefnd hefur lokið störfum vegna komandi aðalfundar félagsins og er ánægjulegt að greina frá því að framboð til stjórnar eru fleiri en þau sæti sem kjósa þarf um.
Ólíkt því sem oft áður hefur verið þurfti nefndin ekki að hvetja einstaklinga sérstaklega til framboðs. Að þessu sinni höfðu fleiri samband að eigin frumkvæði og lýstu yfir vilja til að taka þátt í starfi stjórnar. Það er afar jákvætt merki um kraft og áhuga innan félagsins.
Núverandi stjórn – ekki í kosningu:
Eftirfarandi sitja áfram í stjórn:
- Bjarni Freyr Þórðarson, félagsforingi
- Harpa Kolbeinsdóttir, ritari
- Dagný Lind Pálsdóttir, meðstjórnandi
Bjóða sig fram áfram til stjórnar
- Guðvarður Björgvin Fannberg Ólafsson, meðstjórnandi
- Kristján Ingi Þórðarson, aðstoðarfélagsforingi
(meðstjórnandi verði samþykkt lagabreyting) - Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, gjaldkeri
(meðstjórnandi verði samþykkt lagabreyting)
Ný framboð til meðstjórnenda
- Haukur Freyr Ólafsson, sveitarforingi í fálkaskátum
- Jónina Sigríður Grímsdóttir (Ninna), foreldri í fálkaskátum
Framboð til varamanna (og meðstjórnenda verði lagabreyting samþykkt)
- Bragi Reynisson, varamaður, býður sig fram áfram
- Jakob Heimir Burgel Ingvarsson, deildarforingi og formaður foringjaráðs
Framboðin endurspegla breidd og fjölbreytileika í starfi félagsins – þar mætast reynsla, ný sýn og sterkur vilji til að byggja áfram upp öflugt og metnaðarfullt starf. Það er dýrmætt að sjá bæði reynslumikla leiðtoga og ný andlit stíga fram og bjóða sig fram til ábyrgðar.
Aðalfundur er lýðræðislegur hjartsláttur félagsins. Þar tökum við sameiginlega ákvörðun um hver leiðir starfið næsta starfsár og mótum um leið stefnu og forgangsröðun til framtíðar.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta, kynna sér framboðin og taka virkan þátt.
