Skráning í skátastarf Hraunbúa starfsárið 2026 til 2027 er hafin.

Í vetur bjóðum við upp á fjölbreytt starf frá fjölskylduskátum upp í róverskáta. Í skátunum takast þátttakendur á við spennandi verkefni, njóta útivistar og ævintýra og efla sjálfstæði, samvinnu og félagsfærni. Bæði nýir og reyndir skátar eru hjartanlega velkomnir.

Fundartímar

Fjölskylduskátar
Fyrir börn á öllum aldri og fjölskyldur þeirra. Fundir eru einn sunnudag í mánuði kl. 13:00 til 15:00.

Hrefnuskátar, fædd 2019 og 2020
Fundir eru á þriðjudögum kl. 16:00 til 17:00.

Drekaskátar, fædd 2017 og 2018

Rauðúlfar funda á miðvikudögum kl. 16:00 til 17:15.
Grábræður funda á fimmtudögum kl. 16:00 til 17:15.

Fálkaskátar, fædd 2014 til 2016
Val er um fundi á þriðjudögum, miðvikudögum eða fimmtudögum kl. 17:30 til 19:00.

Dróttskátar, fædd 2011 til 2013
Val er um fundi á þriðjudögum, miðvikudögum eða fimmtudögum kl. 18:00 til 20:00.

Rekkaskátar, fædd 2008 til 2010
Fundir eru á miðvikudögum kl. 20:00 til 22:00.

Róverskátar, fædd 2001 til 2007
Fundir eru annan hvern fimmtudag kl. 20:00 til 22:00.

Skráning fer fram í Abler.