Laugardaginn 14. nóvember voru átta Hraunbúar sæmdir Forsetamerkinu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Forsetamerkið er eitt stærsta verkefni sem rekkaskátar geta tekist á við og tekur vegferðin að jafnaði tvö til þrjú ár. Á þeim tíma takast skátarnir á við fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snúa meðal annars að útivist, leiðtogahlutverki, samfélagsþátttöku, ferðalögum og persónulegum þroska.
Hraunbúarnir sem hlutu Forsetamerkið að þessu sinni eru:
Eiður Snær Óskarsson
Eydís Ósk Sævarsdóttir
Haukur Freyr Ólafsson
Logi Jökulsson
Melkorka Thea Rósenberg Þrastardóttir
Nanna Sóley Ottósdóttir
Smári Hannesson
Þórður Jón Guðlaugsson
Einnig hlaut Bergur Vilhjálmsson Forsetamerkið við athöfnina. Bergur starfar nú með Vífli og Landnemum en hefur lengi verið hluti af Hraunbúum og hefur enn annan fótinn hjá okkur, sem okkur þykir afar vænt um. Við óskum honum innilega til hamingju með áfangann.
Þórður Jón Guðlaugsson lést fyrr í haust og var hans sérstaklega minnst við athöfnina. Hann hafði unnið að Forsetamerkinu ásamt félögum sínum undanfarin ár og lokið þeirri vegferð sem að baki merkinu liggur.
Smári Hannesson, Hraunbúi, og Svava Dröfn Davíðsdóttir úr Árbúum fluttu hátíðarræðu fyrir hönd forsetamerkishafa. Þar var meðal annars fjallað um vegferðina að Forsetamerkinu, ævintýrin og vináttuna sem verða til í skátastarfinu og minningu Þórðar Jóns.
Við Hraunbúar erum afar stolt af þessum öflugu skátum og óskum þeim innilega til hamingju með þennan stóra áfanga.
Recent Comments