Tag

Aðalfundur

Fyrirhugaðar lagabreytingar á aðalfundi

By Fréttir

Á komandi aðalfundi verða lagðar fram nokkrar tillögur að breytingum á lögum félagsins.
Markmið breytinganna er fyrst og fremst að einfalda verklag, nútímavæða boðunar- og upplýsingamiðlun og skýra skipan stjórnar þannig að hún endurspegli betur starf félagsins í dag.

Hér að neðan er yfirlit yfir helstu breytingar og tilgang þeirra:


Breytingartillaga 1 – Boðun aðalfundar (3.2)

Lagt er til að boðun aðalfundar fari fram:

  • Með auglýsingu á heimasíðu félagsins
  • Og með tölvupósti til allra Hraunbúa

Í stað auglýsingar í Hraunbyrgi og bréflegs boðunar.

Tilgangur:
Að færa boðun alfarið yfir í rafrænt form og samræma verklag nútíma samskiptaháttum, án þess að draga úr fyrirvara eða upplýsingagjöf.


Breytingartillaga 2 – Skýrsla stjórnar og ársreikningar (3.5)

Lagt er til að:

  • Skýrsla stjórnar geti legið fyrir rafrænt á miðlum félagsins
  • Ársreikningar verði lagðir fram á stjórnarfundi minnst viku fyrir aðalfund

Tilgangur:
Að tryggja gagnsæi og faglegt ferli við yfirferð reikninga og jafnframt nýta rafræna miðlun gagna í stað pappírsafrita.


Breytingartillaga 3 – Skipan stjórnar (3.6)

Stjórn verði skipuð:

  • Félagsforingja og átta meðstjórnendum (alls níu einstaklingum)

Fallið er frá því að kjósa í fyrirfram skilgreind embætti (ritara, gjaldkera o.fl.) á aðalfundi.
Í stað þess mun stjórn skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund og getur endurskoðað verkaskiptingu síðar ef þörf krefur.

Skylt verður að skipa:

  • Gjaldkera
  • Formann skálanefndar
  • Dagskrárforingja
  • Sjálfboðaliðaforingja

Jafnframt er fallið frá sérstakri kosningu varamanna.

Tilgangur:
Að skapa sveigjanlegri og virkari stjórn þar sem hlutverk ráðast af styrkleikum og aðstæðum hverju sinni, fremur en föstum titlum.
Markmiðið er einnig að tryggja að lykilhlutverk innan félagsins séu skýr og virk.


Breytingartillaga 4 – Skipun í stjórn milli aðalfunda (3.7)

Lagt er til að stjórn fái heimild til að skipa nýjan meðlim í stjórn ef einstaklingur fellur frá stjórnarsetu á miðju kjörtímabili.

Ef fleiri en tveir stjórnarmenn víkja milli aðalfunda skal boða til aðalfundar.
Ef félagsforingi víkur skal einnig boða til aðalfundar, en stjórn getur skipað tímabundinn félagsforingja fram að því.

Tilgangur:
Að tryggja eðlilega og skilvirka stjórnsýslu milli aðalfunda og koma í veg fyrir óþarfa bið eða formfasta flækju þegar upp koma einfaldar aðstæður.


Breytingartillaga 5 – Lagabreytingar (5.4)

Tillagan felur í sér nútímavæðingu á birtingu og aðgengi að tillögum, meðal annars með rafrænum miðlum félagsins.

Óbreytt er krafa um að 2/3 kosningabærra fundarmanna þurfi að samþykkja lagabreytingar svo þær öðlist gildi.

Tilgangur:
Að halda fast í lýðræðislega vernd laganna en uppfæra framkvæmdina til samræmis við nútímalegt starfshætti.

Hér fyrir neðan má sjá lagabreytingarnar orðréttar:

Aðalfundur 2025

By Fréttir

Aðalfundarboð

Aðalfundur Hraunbúa 2025 fer fram í Hraunbyrgi miðvikudaginn 26. febrúar 2025 kl. 20:00. Samkvæmt lögum félagsins um kosningarétt hafa allir starfandi skátar, 16 ára og eldri, auk eins forráðamanns hvers skáta undir 16 ára aldri kosningarétt, en aðrir geta setið fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Sjá nánar í grein 3.3. úr lögum félagsins. 

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu ef árgjöld skátans er í skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi. Fulltrúi úr stjórn BÍS á seturétt sem áheyrnarfulltrúi á aðalfundi. Félagsstjórn er heimilt að bjóða öðrum að sitja aðalfund sem áheyrnarfulltrúar. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. 

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

  1. a)      Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. b)      Skýrsla stjórnar.
  3. c)      Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
  4. d)      Umræður um framlagðar skýrslur.
  5. e)      Lagðir fram yfirfarnir ársreikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  6. f)       Lagabreytingar.
  7. g)      Kynning frambjóðenda.
  8. h)      Kosning stjórnar.
  9. i)       Kosning tveggja varamanna stjórnar
  10. j)       Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
  11. k)      Kosning þriggja manna í laganefnd.
  12. l)       Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
  13. m)     Kosning skálanefndar.
  14. n)      Önnur mál.

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, sem varamenn eða í nefndir er bent á að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa: 

Harpa Hrönn Grétarsdóttir, s. 846 3623 harpa@hraunbuar.is
Erna Mjöll Grétarsdóttir, s. 897 3763 ernamjoll@hotmail.com
Sindri Friðriksson, s. 862 1680 sindri@hraunbuar.is

Núverandi lög félagsins eru á vefsíðu okkar: www.hraunbuar.is/felagid/log-felagsins

Hlökkum til að sjá ykkur.

Aðalfundur 2024

By Fréttir

Aðalfundarboð

Aðalfundur Hraunbúa 2024 fer fram í Hraunbyrgi þriðjudaginn 27. febrúar 2024 kl. 20:00. Samkvæmt lögum félagsins um kosningarétt hafa allir starfandi skátar, 16 ára og eldri, auk eins forráðamanns hvers skáta undir 16 ára aldri kosningarétt, en aðrir geta setið fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Sjá nánar í grein 3.3. úr lögum félagsins. 

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu ef árgjöld skátans er í skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi. Fulltrúi úr stjórn BÍS á seturétt sem áheyrnarfulltrúi á aðalfundi. Félagsstjórn er heimilt að bjóða öðrum að sitja aðalfund sem áheyrnarfulltrúar. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. 

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

  1. a)      Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. b)      Skýrsla stjórnar.
  3. c)      Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
  4. d)      Umræður um framlagðar skýrslur.
  5. e)      Lagðir fram yfirfarnir ársreikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  6. f)       Lagabreytingar.
  7. g)      Kynning frambjóðenda.
  8. h)      Kosning stjórnar.
  9. i)       Kosning tveggja varamanna stjórnar
  10. j)       Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
  11. k)      Kosning þriggja manna í laganefnd.
  12. l)       Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
  13. m)     Kosning skálanefndar.
  14. n)      Önnur mál.

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, sem varamenn eða í nefndir er bent á að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa: 

Harpa Hrönn Grétarsdóttir, s. 846 3623 harpa@hraunbuar.is
Erna Mjöll Grétarsdóttir, s. 897 3763 ernamjoll@hotmail.com
Sindri Friðriksson, s. 862 1680 sindri@hraunbuar.is

Núverandi lög félagsins eru á vefsíðu okkar: www.hraunbuar.is/felagid/log-felagsins

Hlökkum til að sjá ykkur.

Aðalfundur 2020

By Fréttir

Aðalfundarboð

Aðalfundur Hraunbúa 2020 fer fram í Hraunbyrgi fimmtudaginn 27. febrúar 2020 kl. 20:00. Samkvæmt lögum félagsins um kosningarétt hafa allir starfandi skátar, 16 ára og eldri, auk eins forráðamanns hvers skáta undir 16 ára aldri kosningarétt, en aðrir geta setið fundinn sem áheyrnarfulltrúar. Sjá nánar í grein 3.3. úr lögum félagsins. 

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 16 ára og eldri, ef árgjöld þeirra er í skilum. Einnig einn forráðamaður hvers skáta undir 16 ára aldri í félaginu ef árgjöld skátans er í skilum. Enginn einn forráðamaður getur farið með fleira en eitt atkvæði á aðalfundi. Fulltrúi úr stjórn BÍS á seturétt sem áheyrnarfulltrúi á aðalfundi. Félagsstjórn er heimilt að bjóða öðrum að sitja aðalfund sem áheyrnarfulltrúar. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. 

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

  1. a)      Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. b)      Skýrsla stjórnar.
  3. c)      Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf og annarra eininga félagsins.
  4. d)      Umræður um framlagðar skýrslur.
  5. e)      Lagðir fram yfirfarnir ársreikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
  6. f)       Lagabreytingar.
  7. g)      Kynning frambjóðenda.
  8. h)      Kosning stjórnar.
  9. i)       Kosning tveggja varamanna stjórnar
  10. j)       Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
  11. k)      Kosning þriggja manna í laganefnd.
  12. l)       Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
  13. m)     Kosning skálanefndar.
  14. n)      Önnur mál.

Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, sem varamenn eða í nefndir er bent á að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa: 

Harpa Hrönn Grétarsdóttir, s. 846 3623 harpa@hraunbuar.is
Guðni Gíslason, s. 896 4613 gudni@fjardarfrettir.is
Þórður Ingi Bjarnason, s. 821 8757 tordur@hraunbuar.is

Núverandi lög félagsins eru á vefsíðu okkar: www.hraunbuar.is/felagid/log-felagsins

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Aðalfundur 2019 – framhald

By Fréttir

Aðalfundur Hraunbúa

 

Aðalfundur Hraunbúa fór fram 18. febrúar síðastliðin í Hraunbyrgi. Þá bar helst til tíðinda breytingar á stjórn en nokkur endurnýjun var á stjórnarfólki í ár.

Einnig fékk flottur hópur Hraunbúa afhent heiðursmerki.

Hrafnhildur Ýr Hafsnteinsdóttir ákvað að gefa ekki kost á sér í stöðu félagsforingja aftur, Una Guðlaug Sveinsdóttir gaf ekki kost á sér í stöðu ritara aftur og Berglind Mjöll Jónsdóttir gaf ekki kost á sér í stöðu meðstjórnanda aftur.

Bjarni Freyr Þórðarson, aðst.félagsforingi, bauð sig fram í stöðu félagsforingja, Andri Már Reynisson bauð sig fram í stöðu aðst.félagsforingja í stað Bjarna til eins árs. Harpa Kolbeinsdóttir bauð sig fram í stöðu ritara. Eyþór Orri Óskarsson færir sig til í stöðu meðstjórnanda og Birna Sigurðardóttir bauð sig fram í stöðu meðstjórnanda til eins árs.

Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir og Guðmundur Sigurðsson buðu sig fram sem varamenn.

Engin mótframboð komu og voru því allir sjálfkjörnir.

 

Eftirfarandi fengu afhent heiðursmerki Hraunbúa

-Berglind Mjöll Jónsdóttir – Bronsmerki
-Guðmundur Sigurðsson – Silfurmerki
-Guðrún Stefánsdóttir – Gullmerki
-Una Guðlaug Sveinsdóttir – Gullmerki
-Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir – Emilerað merki

 

Ársskýrsluna og Fundargerð má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Fundargerð

Ársskýrsla