Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðar bókaði í dag, 25. nóvember, að ráðið hygðist ekki leggja til fjármagn til reksturs tjaldsvæðisins á Víðistaðatúni. Sjá bókun hér.
Að mati Hraunbúa eru forsendur fyrir áframhaldandi rekstri svæðisins ekki tryggðar og að óbreyttu verður ekki unnt að opna það sumarið 2027.

Bókunin skýrir afstöðu ráðsins á þessum tímapunkti, en endanlegt fyrirkomulag liggur ekki fyrir. Hluti af samstarfi Skátafélagsins Hraunbúa og Hafnarfjarðarbæjar hefur verið rekstur tjaldsvæðisins. Tekjur þess hafa stutt við rekstur Hraunbyrgis og starfsemi félagsins og þannig nýst barna- og ungmennastarfinu.

Óvissan um tjaldsvæðið tengist því einnig rekstrarforsendum félagsins. Samstarfssamningur Hraunbúa og Hafnarfjarðarbæjar rennur út 31. desember næstkomandi. Nýir samningar hafa ekki verið undirritaðir þrátt fyrir langar viðræður.

Samningaviðræður standa enn yfir

Endurskoðun samstarfssamninganna hefur staðið yfir frá árinu 2025. Eftir fundi og samningaviðræður voru nýir samningar til umfjöllunar í maí 2026.

Nú er rúmur mánuður þar til gildandi samningur rennur út. Enn á því eftir að ganga frá fyrirkomulagi áframhaldandi samstarfs og þeim rekstrarforsendum sem því fylgja.

Skátastarf er skipulagt til lengri tíma en eins mánaðar í senn. Félagið þarf að geta gert áætlanir um starfsfólk, húsnæði, og þátttökugjöld með nægilegum fyrirvara. Óvissa um samninga og fjármögnun gerir þá vinnu erfiðari og takmarkar möguleika stjórnar til að skipuleggja komandi misseri.

Traust umgjörð um skátastarfið

Hraunbúar hafa í meira en öld verið hluti af samfélaginu í Hafnarfirði. Í skátastarfinu fá börn og ungmenni tækifæri til að eignast vini, njóta útivistar, takast á við áskoranir og þroska sjálfstæði sitt og ábyrgð. Starfið byggist að stórum hluta á sjálfboðavinnu, en að baki því þarf einnig að vera tryggt húsnæði, starfsfólk, og stöðugur rekstur.

Samstarfssamningur félagsins við Hafnarfjarðarbæ hefur verið mikilvæg undirstaða þessarar umgjarðar.

Hraunbúar hafa lagt mikla vinnu í að byggja upp öflugt og aðgengilegt starf fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði í samstarfi við bæinn. Félagið vonast til að yfirstandandi viðræður leiði til niðurstöðu sem veitir starfinu trausta og fyrirsjáanlega umgjörð.

Fyrir hönd Skátafélagsins Hraunbúa,
Bjarni Freyr Þórðarson, félagsforingi