Vormót 2026
Vormót Hraunbúa verður haldið í 84. sinn um Hvítasunnuhelgina 22.-25. maí 2026. Í ár ætlum við að vinna með þemað Vormót í vindi og mun það að einhverju leyti endurspeglast í dagskránni.Öll á fálkaskáta aldri og eldri eru velkomin á Vormót, auk þess verða fjölskyldubúðir og þangað eru allar fjölskyldur skáta velkomnar. Drekaskátar Hraunbúa munu koma í dagsferð á sunnudeginum.
Dagskráin verður svipuð og verið hefur undanfarin ár, boðið verður upp á göngur, hjólaferð í sund (þau sem ætla í hjólaferð koma með sín eigin hjól), víkinga dagskrá, ratleik, báta, kvöldvöku og fleira.
Boðið verður upp á kjúklingasúpu fyrir öll á föstudagskvöld og pylsupartý á laugardagskvöld.
Kakóið verður að sjálfsögðu á sínum stað og hafragrauturinn á morgnanna.
Þau sem hafa ofnæmi eða sérþarfir í mat geta sent póst á vormot@hraunbuar.is
Mótið er haldið á flugmódelvelli Þyts við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði og er góð æfing fyrir unga skáta sem eru að stíga sín fyrstu skref á skátamótum og tilvalin æfing fyrir Landsmót sem verður haldið seinna í sumar.
Mótsgjald er 16.200,- og skráning fer fram á Abler, það er systkinaafsláttur og fyrir þau sem vilja nýta hann þá er annað systkinið skráð í gegnum Abler og svo er haft samband við foringja eða Hraunbúa til að greiða lægra gjald fyrir næsta barn.
Skráningarfrestur er til kl.23:59 miðvikudaginn 20. maí
Skráningin fer fram á Abler : https://www.abler.io/shop/hraunbuar/
Mótssvæðið opnar klukkan 17:00 og áætluð setning klukkan 20:00 en gæti breyst.
Rekka&Róver dagskrá verður í boði öll kvöldin.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og njóta þess að vera með ykkur í byrjun skáta sumarsins.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að hafa samband hér: vormot@hraunbuar.is
Skilmálar skráningar á Vormót
- Gjald fyrir Vormót er 16.200 krónur – innifalið í því er öll dagskrá, kvöldmatur á föstudegi, pylsupartý á laugardagskvöldi, hafragrautur og ávextir alla morgna, kakó og kex öll kvöld. Kakó Tjaldið er opið allan daginn á meðan mótið er.
- Boðið er upp á systkinaafslátt, til þess að hægt sé að virkja hann er annað systkinið skráð í gegnum abler og svo sendur tölvupóstur á hraunbuar@hraunbuar.is sem sendir upplýsingar um upphæð og reikningsnúmer til baka, þannig fær seinna systkinið 20% afslátt. ATH að ekki er hægt að virkja þennan afslátt í gegnum abler og ekki er hægt að breyta þessu eftir á ef búið er að skrá bæði systkinin í gegnum abler.
- Þátttakendur eru ekki sérstaklega slysatryggðir, ábyrgðar tryggðir eða vátryggðir í skátastarfi. Bent er á að þessar tryggingar eru oft hluti af heimilis- og fjöskyldutryggingum og öðrum almannatryggingum forráðafólks.
- Tilkynna þarf forföll á viðburðinn vegna veikinda eða annarra ófyrirséðra aðstæðna á netfangið hraunbuar@hraunbuar.is eins fljótt og auðið er.
- Hraunbúar áskilja sér rétt til að halda eftir hluta af mótsgjaldi sem hér segir:
- Ef hætt er við þátttöku tveim vikum fyrir mót er 90% mótsgjalds endurgreitt.
- Ef hætt er við þátttöku viku fyrir mót er 50% mótsgjalds endurgreitt.
- Ef hætt er við þátttöku 2 sólarhringum fyrir mót er 25% endurgreitt.
- Ef hætt er við þátttöku innan við sólarhring fyrir mót er engin endurgreiðsla.
- Mótshaldari getur þurft að aflýsa mótinu vegna gildra og óviðráðanlegra ytri aðstæðna. Við slíkar aðstæður er ávallt reynt að hámarka endurgreiðslur að teknu tilliti til kostnaðar sem lagður hefur verið út vegna viðburðarins og fæst ekki endurgreiddur.
