Íslenski fáninn
Fánadagur
Öllum er heimilt að nota íslenska fánann, enda sé farið að lögum og reglum sem um hann gilda. Æskilegt er að almenningur dragi fána að hún á fánadögum. Fánann má nota við öll tækifæri, jafnt sem tengjast einkalífi sem önnur eða á sorgarstundum, þá dreginn í hálfa stöng.
Fánadagarnir eru:
- Fæðingardagur forseta Íslands
- Nýársdagur
- Föstudagurinn langi
- Páskadagur
- Sumardagurinn fyrsti
- 1. maí
- Hvítasunnudagur
- Sjómannadagurinn
- 17. júní
- 1. desember
- Jóladagur
Alla fyrrgreinda daga skal draga fána að hún, nema föstudaginn langa, þá í hálfa stöng.
Fánatími
Fána skal ekki draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og skal hann að jafnaði ekki vera lengur uppi en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis. Ef flaggað er við útisamkomu, opinbera athöfn, jarðarför eða minningarathöfn, má fáni vera uppi lengur en til sólarlags eða svo lengi sem athöfn varir, en þó aldrei lengur en til miðnættis.
Fáni deginn að hún
Ávallt skal gæta þess að fáni snerti ekki jörðu, vatnsyfirborð eða gólf. Halda skal fánanum samanbrotnum í handarkrikanum svo festingar snúi fram á meðan fáni er festur á fánalínuna. Fánann skal draga upp með jöfnum hraða, þannig að fáninn liggi þétt að stönginni þar til efra horn fánans nemur við hún.
Þegar fáni er dreginn niður skal það gert með jöfnum, hægum hraða.
Fáni í hálfa stöng
Fyrst skal draga fána að hún og síðan fella, svo að 1/3 stangarinnar sé fyrir ofan fánann. Við jarðarför eða aðra sorgarathöfn skal draga fána að hún þegar henni er lokið og skal hann blakta þar uns fánatíma lýkur.
Frágangur fána eftir notkun
Fáni skal brotinn í fernt eftir endilöngu og vafinn upp þannig að einungis blái liturinn snúi út. Fáninn skal alltaf geymdur á öruggum stað. Fáni sem hefur blotnað, skal ekki brotinn saman til geymslu fyrr en hann hefur þornað.
Fáni á líkkistu
Sé líkkista sveipuð þjóðfánanum, skal krossmarkið vera við höfðalag og ekki má leggja neitt ofan á fánann. Hvorki má kasta rekum á fánann, né láta hann síga niður í gröf.
Fáninn með öðrum þjóðfánum
Að jafnaði eru erlendir þjóðfánar einungis notaðir hér á landi af opinberum fulltrúum erlendra ríkja. Á milliríkjamótum eða öðrum fjölþjóðlegum samkomum má hafa uppi þjóðfána erlendra ríkja ásamt íslenska fánanum.
Í röð þjóðfána skal íslenski fáninn vera lengst til vinstri þegar komi ð er að fánastað, en öðrum þjóðfánum raðað til hægri frá honum í stafrófsröð íslenskra heita hlutaðeigandi ríkja. Sé fánanum hvirfilraðað, má íslenski fáninn vera í miðju milli hinna fánanna.
Leitast skal við að hafa alla fánanna af sömu stærð. Ef fánarnir eru á stöngum og ekki er unnt að draga þá alla samtímis að hún eða niður, skal íslenski fáninn dreginn fyrstur að hún og síðastur niður.
Heimilt er, ef heiðra skal við sérstakt tækifæri ákveðna þjóð eða milliríkjastofnun, t.d. Sameinuðu þjóðirnar eða Evrópuráðið, að hafa fána slíks aðila milli íslenska fánans og þess þjóðfána sem ætti að vera næstur honum.
Aldrei skal hafa tvo eða fleiri þjóðfána á sömu stöng. Sé íslenski fáninn og erlendur þjóðfáni hengdur á vegg á stöngum, skal íslenski fáninn vera til vinstri séð frá áhorfenda og stöng hans yfir stöng hins fánans.
Ýmsar reglur
Ekki skal raða merkjum eða fánum sveitarfélaga, félaga eða fyrirtækja inn á milli þjóðfána. Slíkir fánar skulu hafðir í röðum eða þyrpingum aðskildum frá þjóðfánum.
Sé fáni á stöng við altari, ræðustól eða ræðuborð, leiksvið eða annan sambærilegan stað, skal hann vera vinstra megin séð frá áhorfenda. Séu fánarnir tveir, skulu þeir vera sinn til hvorrar handar.
Hvorki má sveipa ræðustól þjóðfána né hafa hann framan á ræðustól.
Ekki má nota upplitaða fána, óhreina, trosnaða eða skemmda. Sé ekki unnt að lagfæra slíkan fána, skal hann ónýttur með því að brenna hann.
Þegar fánahylling á sér stað er ætlast til þess að viðstaddir standi á meðan.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar má finna í bókinni Fáni Íslands, skjaldarmerki, þjóðsöngur og heiðursmerki sem gefin var út af Forsætisráðuneytinu 1991.
Ráðgjöf
Skátahreyfingin veitir almenningi ráðgjöf um meðferð íslenska fánans í Skátamiðstöðinni á skrifstofutíma í síma 550 9800 og má jafnframt koma þangað slitnum íslenskum fánum til förgunar.
Þessa síðu er svo hægt að nálgast í heild sinni á vef Bandalags Íslenskra Skátawww.skatar.is