Stefna Skátafélagsins Hraunbúa í vímuvörnum
- Forvarnargildi skátastarfs
Skátahreyfingin gegnir mikilvægu hlutverki í vímuvörnum. Rannsóknir á högum barna og ungmenna sýna að þeim ungmennum sem eru virk í skátastarfi, reiðir betur af og neyta síður vímuefna. Hraunbúar vilja efla enn frekar vímuvarnargildi skátastarfs með því að taka skýra stefnu gegn neyslu vímuefna í tengslum við skátun.
Í þessari stefnuyfirlýsingu er talað um fíkni- og vímuefnaneyslu og er þá átt við neyslu tóbaks, áfengis og allra ólöglegra vímuefna. - Neysla tóbaks og vímuefna
Hraunbúar eru andvígir allri neyslu fíkni- og vímuefna skáta og annarra er koma nálægt starfi með börnum á vegum skátafélagsins. Öll neysla fíkni- og vímuefna er bönnuð í skátaheimili, skátaskála, í útilegum og ferðum á vegum félagsins og á skátamótum. - Viðbrögð félagsins við neyslu skáta
Hraunbúar munu bregðast sérstaklega við allri neyslu skáta undir 18 ára aldri í fyrrgreindri starfsemi félagsins. Foreldrar verða undantekningarlaust upplýstir um slíka neyslu.
Varðandi viðbrögð við fíkni- og vímuefnaneyslu þeirra sem eru sjálfráða, munu Hraunbúar bregðast við neyslu sem er brot á reglum félagsins (sbr. lið 2) og neyslu sem hefur áhrif á ástundun, frammistöðu og ímynd skátafélagsins.
Viðbrögð Hraunbúa við brotum á reglum þessum verða í formi tilmæla og ábendinga. Viðbrögð félagsins munu samt sem áður ávallt mótast af vilja til að aðstoða skátann við að laga sig að reglunum og að hann haldi áfram að starfa innan félagsins. - Hlutverk foringja
Foringjar skulu starfa eftir fíkni- og vímuvarnarstefnu skátafélagsins Hraunbúa, þar með talið að bregðast við fíkni- og vímuefnaneyslu á viðeigandi hátt.
Hraunbúar munu sjá foringjum fyrir fræðsluefni um áhrif fíkni- og vímuefnaneyslu á ástundun og frammistöðu í skátastarfi sem og á einkalíf skátans.
Foringjar skulu framfylgja stefnu skátafélagsins Hraunbúa varðandi samstarf við foreldra og aðra aðila sem sinna málefnum barna og unglinga. - Samstarf við foreldra
Hraunbúar munu upplýsa foreldra um stefnu skátafélagsins í fíkni- og vímuvörnum. Hraunbúar munu standa að góðu samstarfi við foreldra skáta með fræðslu um neikvæð áhrif fíkni- og vímuefna. Hraunbúar munu starfa náið með fagfólki í fíkni- og vímuvörnum og hafa samráð við foreldra, þurfi að taka á neysluvandamáli skáta undir sjálfræðisaldri. - Samstarf við aðra aðila sem sinna málefnum barna og unglinga
Hraunbúar munu hafa náið samstarf við þá aðila sem sinna tómstundastarfi barna og unglinga. Hraunbúar muna hafa náið samstarf við fagaðila sem sinna börnum og unglingum, fá frá þeim fræðsluefni og hafa samráð um einstaklinga í áhættuhópi.