Skip to main content

Bandalög skáta

Bandalag íslenskra Skáta
Hraunbúar eru meðlimir í­ Bandalagi íslenskra Skáta (BíS).  BíS er samtök allra skáta á íslandi og er staðsett í­ Hraunbæ 123, Reykjaví­k.

BíS þjónar margví­slegu hlutverki í­ skátahreyfingunni á íslandi. Bandalagið er partur af WAGGGS og WOSM sem eru alþjóðasambönd skáta og sér um að afla, miðla og deila efni og upplýsingum frá þeim.  Hjá BíS eru starfandi fimm fastaráð

  • Alþjóðaráð
  • Dagskrárráð
  • Fjármálaráð
  • Fræðsluráð
  • Upplýsingaráð

Nafn þessara ráða gefa nokkuð vel til kynna hver þverskurður af verkefnum BíS er. Þannig annast alþjóðaráð samskipti við erlenda aðila, kynnir í­slenskt skátastarf erlendis og kynnir erlent skátastarf hér á landi. Dagskrárráð gerir tillögur að sameiginlegu skátastarfi á vegum BíS auk þess að gera tillögur um námskeið og foringjaþjálfun. Fjármálaráð annast fjáraflanir og fjármagn. Fræðsluráð hefur yfirumsjón með öllum námskeiðum og skipulagningu þeirra.  Upplýsingaráð sér um samskipti fyrir BíS útávið.

Vefsí­ða BíS geymir mikið magn upplýsinga um skátastarf á íslandi.

WOSM
World Organization of the Scout Movement (WOSM) er alþjóðasamband drengskáta. Meðlimir WOSM eru u.þ.b. 28.000.000 skátar en sambandið var stofnað árið 1920. Höfuðstöðvar þess eru í­ Genf, Sviss. Skátar í­ Bandalagi íslenskra Skáta eru meðlimir í­ WOSM.

Markmið WOSM er að undirbúa ungt fólk fyrir samfélagið í­ gegnum skátaheitið og skátaloforðið og þau gildi sem þau standa fyrir. WOSM er skipt niður í­ nokkur svæði og tilheyrir ísland Evrópusvæðinu.

Vefsí­ða WOSM er mjög stór og yfirgripsmikil. Þar er hægt að nálgast mikið af hjálpargögnum, skýrslum, viðburðum og fleiru.

WAGGGS
World Association of Girl Guides and Girl Scouts (WAGGGS) er alþjóðasamband kvenskáta. Meðlimir WAGGGS telja milljónir og koma frá 145 löndum. Sambandið var stofnað árið 1928 og er með höfuðstöðvar í­ London, Englandi. Skátar í­ Bandalagi íslenskra Skáta eru meðlimir í­ WAGGGS.

Markmið WAGGGS er að gera stelpum og ungum konum kleyft að ná fullum árangri og þjálfa leiðtogahæfileika þeirra.

Vefsí­ða WAGGGS inniheldur ýmsar gagnlegar upplýsingar.