Lög og heit
Skátalögin
Á skátaþingi 2007 var samþykt að skátalögunum yrði í breytt í samræmi við nýja skátadagskrá sem RAP hópurinn hefur gert.
Nýju skátalögin eru svohljóðandi
- Skáti er hjálpsamur
- Skáti er glaðvær
- Skáti er traustur
- Skáti er náttúruvinur
- Skáti er tillitssamur
- Skáti er heiðarlegur
- Skáti er samvinnufús
- Skáti er nýtinn
- Skáti er réttsýnn
- Skáti er sjálfstæður
- í starfi drekaskáta er áhersla lögð á fyrstu fjórar greinar skátalaganna.
- í starfi fálkaskáta er áhersla lögð á fyrstu sjö greinar skátalaganna.
- í starfi eldri skáta er jöfn áhersla á allar greinar skátalaganna.
Gömlu skátalögin voru svona:
- Skáti segir ávallt satt og stendur við orð sín.
- Skáti er traustur félagi og vinur.
- Skáti er hæverskur í hugsunum, orðum og verkum.
- Skáti er hlýðinn
- Skáti er glaðvær
- Skáti er öllum hjálpsamur
- Skáti er tilitssamur
- Skáti er nýtinn
- Skáti er snyrtilegur í umgengni og ber virðingu fyrir eigum annarra.
- Allir skátar eru náttúruvinir
Skátaheitið
Ég lofa að gera það sem í mínu valdi stendur til þess:
- að gera skyldu mína við samvisku og samfélag (eða guð og ættjörðina),
- að hjálpa öðrum
- og halda skátalögin