Markmið skátanna
Úr 2. grein laga- og reglugerð BíS:
Markmið skátahreyfingarinnar er að þroska börn og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu. Markmiði skátahreyfingarinnar hyggst BíS m.a. ná með:
- Hópvinnu til að þroska tillitssemi, samstarfshæfileika, ábyrgð og stjórnunarhæfileika.
- Útilífi til að efla líkamsþrek og vekja áhuga á náttúrunni og löngun til að vernda hana.
- Viðfangsefnum af ýmsu tagi til að kenna skátum ýmis nytsöm störf, sjálfum þeim og öðrum til heilla.
- Þáttöku í alþjóðastarfi skátahreyfingarinnar til að gefa skátum tækifæri til að kynnast ungu fólki í öðrum löndum, háttum þess og menningu.