Rauðskinnur
Rauðskinnur er gömul stúlknasveit í skátafélaginu Hraunbúar. Í henni eru 10-12 ára fálkaskátastelpur. Rauðskinnur er indíánanafn svo flest tengt sveitinni tengjast indíánum á einhvern hátt. Margir indíánaflokkar eru starfandi innan Rauðskinna.
Fundirnir eru á fimmtudögum kl.17:30 – 19:00
Í sveitinni er starfandi sveitaráð sem heitir Mokkasíur, en sveitarráðinu tilheyra flokksforingjar, aðstoðarflokksforingjar og sveitaforingjar.
Á hverri önn er farið í sveitarútilegu, félagsútilegu og dagsferðir. Í byrjun hvers sumars fer sveitin saman á Vormót Hraunbúa.
Starfsvettvangur: láglendið og tjaldbúð
Foringjar Rauðskinna veturinn 2014-15 eru:
Árný Björnsdóttir arny@hraunbuar.is 8241763
Berglind Mjöll Jónsdóttir bella@hraunbuar.is 892 1229
