Virðing við umhverfinu og næsta nágreni okkar hefur ávallt verið partur af skátastarfinu. Hjá Hraunbúum er unnið markvisst að því að kenna skátunum að bera virðingu fyrir náttúrunni og umhverfi okkar. Markmiðið með þessari kennslu er að skátinn
- sé meðvitaður um hvernig hægt er að bæta líf sitt og komandi kynslóða með því að umgangast umhverfi sitt og náttúru af tillitssemi og umhyggju.
- dragi úr hvers kyns sóun verðmæta með nýtni og því að endurnota og endurvinna
Til þess að ná fram þessu markmiði er nauðsynlegt að
- Hraunbúar og foringjar þess sýni skátum fordæmi í gjörðum sínum.
- Endurvinnsla sé tekin fyrir á skemmtilegan máta í skátastarfinu og sé partur af dagskrá ár hvert.
- Hraunbúar endurnoti og endurvinni.
Sem fordæmi fyrir skáta munu Hraunbúar endurvinna flöskur, dósir, pappa og mjólkurfernur, skila í lokuðum umbúðum spilliefnum og rafhlöðum á þar til gerða staði þar sem þeim er fargað, gefa alla óskilamuni sem ekki hafa verið vitjað innan hálfs árs til alþjóðlegs hjálparstarfs.