Hraunálfar (stelpur 7-9 ára)
Vetur 2014-15
Fundartími:
Mánudögum kl:17:30-18:30
Sveitarforingjar vetur 2014-15:
Kristín Guðjónsdóttir
S: 696-1762
kristin@hraunbuar.is
Aðstoðarsveitarforingjar vetur 2013-14:
Einar Daði Andrésson
s: 8485446
einardadi@hraunbuar.is
Hér er stiklað á stóru með dagskrá fyrir Hraunálfana
Við munum halda okkur við lýðræðisleikina til að ákveða hvað við viljum gera á fundunum.
Allir fundir hafa ákveðinn ramma:
- Setning – hún getur verið með ýmsu móti, t.d lagið “Tendraðu lítið skátaljós” sungið (http://www.scout.is/skatastarf/hugmyndir/songvar/songur-26.html)
- Við syngjum saman og spjöllum
- Förum í það verkefni sem var valið af þeim í lýðræðisleiknum.
- Slit – Bræðralagssöngurinn sunginn (http://www.scout.is/skatastarf/hugmyndir/songvar/songur-22.html)
Að vera skáti er að vera könnuður, ekki bara að geta kannað nánasta umhverfi, heldur að kanna okkur sjálf, hvað getum við verið hugrökk,heiðarleg, glaðvær eða virk í því sem við tökum okkur fyrir hendur.
Að vera virkur, sjálfstæður og ábyrgur er megin inntak skátahreyfingarinnar.
Til að ná þeim markmiðum förum við í svokallaða lýðræðisleiki þar sem Hraunálfarnir kjósa um fundarefni fyrir hverja þrjá fundi.
Það sem við gerum örugglega er :
– Syngjum
– Förum í leiki
– Eldum úti
– Tjöldum
– Höfum varðeld
– Súrrum
– Föndrum
– Gerum vinabönd
– Förum á kanó
– Klifrum
– Spjöllum og hlægjum